Fréttablaðið - 29.04.2009, Qupperneq 10
10 29. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Kona hefur verið dæmd
í sjötíu og fimm daga fangelsi
fyrir að reyna að smygla eitur-
lyfjum inn í fangelsið á Litla-
Hrauni í leggöngum sínum.
Þessa tilraun gerði konan í
desember á síðasta ári. Henni
varð þó ekki ágengt því fíkni-
efnahundur þefaði þau uppi í
fangelsinu.
Efnin sem konan hafði komið
fyrir innvortis voru amfetamín,
kókaín og óþekktar lyfjatöflur.
Efnin fundust við líkamsleit.
Konan var jafnframt svipt
ökuréttindum ævilangt, því lög-
regla hafði tekið hana undir stýri
undir áhrifum amfetamíns. - jss
Gestur á Litla-Hrauni:
Með eiturlyf í
leggöngunum
Ó
!
·
1
2
5
9
5
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital | Skógarhlíð 22 | 105 Reykjavík | sími 545 2600 | sagacapital. is
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital veitir fyrirtækjum,
eignarhaldsfélögum og öðrum fjárfestum óháða
og faglega ráðgjöf.
• Fjárhagsleg endurskipulagning
• Kaup, sala og sameining
• Vöktun kaup- og sölutækifæra
• Stöðumat og verðmat
• Samningaviðræður og samningsgerð
• Umsjón með áreiðanleikakönnunum
Starfsmenn Fyrirtækjaráðgjafar Saga Capital hafa
sjálfir umfangsmikla reynslu af stjórnun fyrirtækja
og þekkingu á viðskiptum með fyrirtæki.
VATNIÐ KÆLIR Krakkarnir í Katmandu
í Nepal leika sér að því að stökkva út í
tjörn í sumarhitanum, bæði til þess að
kæla sig og skemmta sér.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Þráinn Bertelsson, nýkjörinn alþing-
ismaður Borgarahreyfingarinnar, hyggst ekki
afsala sér heiðurslaunum listamanna sem
Alþingi hefur um árabil samþykkt honum til
handa.
„Góðviljaðir aðilar hafa ráðlagt mér að
kaupa mig undan þessari athygli með því að
gefa andvirði heiðurslauna til einhvers líkn-
arfélags en þeirri lausn hafna ég, enda þarf
ég ekki að kaupa mér siðferðilega aflausn haf-
andi ekkert af mér brotið - annað en þiggja án
umsóknar æðstu viðurkenningu sem íslenska
þjóðin kann að veita listamönnum sínum,“
segir Þráinn í yfirlýsingu.
„Það er illt til þess að vita að heiðurslaun
mín sem nema eitthundrað og fimmtíu þúsund
krónum á mánuði fyrir skatta - og hafa ekkert
með starfslaun listamanna að gera - skuli hafa
valdið svona mikilli fjölmiðlaathygli og vand-
lætingu,“ bætir Þráinn við og segir mörg for-
dæmi fyrir því að alþingismenn þiggi önnur
laun en þingfararkaup. „Jafnframt er það regla
fremur en undantekning að heiðurslaunaþegar
þiggi laun eða eftirlaun fyrir önnur störf,
enda væru heiðurslaun ekki annað en
fátæktargildra ef ekki væri heimilt að
afla tekna umfram þau.“
Í tillögu sem stjórn Borgara-
hreyfingarinnar samþykkti
og sendi þingmönnum sínum í
gær kemur fram að stjórnin telji
starf þingmanns vera fullt starf
og að þingmenn eigi ekki að taka
laun frá Alþingi fyrir önnur
störf ótengd þingstörf-
um meðan á þingsetu
stendur. Slíkum laun-
um eigi annað hvort
að afsala eða láta
renna til góðgerðar-
mála.
„Í tilfelli Þráins
Bertelssonar þá telur
stjórnin að hafa beri
í huga að heiðurslaun
til listamanna eru
verðlaun fyrir áður unnin störf og fyrir
framúrskarandi árangur á sviði lista,
en ekki hefðbundin laun í skilningi
þess orðs, þótt verðlaunin séu greidd
út reglulega og yfir langt tíma-
bil. Því er það á hans færi að
ákveða með hvaða hætti hann
nýtir þau laun,“ segir stjórn Borg-
arahreyfingarinnar. - gar
Þráinn Bertelsson hyggst ekki afsala sér heiðurslaunum og hafnar því að gefa peningana til líknarmála:
Þarf ekki að kaupa siðferðilega aflausn
ÞRÁINN BERTELSSON „Það sem
miður góðviljaðir aðilar hafa rætt og
ritað um þetta sýnir aðeins þeirra
innræti en ekki mitt og er þar af
leiðandi þeirra vandamál en
ekki mitt,“ segir á bloggsíðu
nýkjörins alþingismanns
vegna umræðu um heið-
urslaun hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVAG
VARNARMÁL Ólíklegt er að finnskar orrustuþotur muni
taka þátt í að sinna loftrýmiseftirliti yfir Íslandi. Að
því er finnska dagblaðið Helsingin Sanomat hefur
eftir heimildarmönnum í finnska stjórnarráðinu eru
efnahagslegar, pólitískar og lagalegar hindranir fyrir
slíkri þátttöku. Upp á henni var stungið í tillögum sem
Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra
Noregs, vann fyrir Norrænu ráðherranefndina og
kynntar voru í febrúar.
„Þetta verkefni væri einum of langt gengið. Jafn-
vel þótt nægar fjárveitingar væru fyrir hendi væru
pólitísk atriði í veginum,“ hefur blaðið eftir einum
heimildarmanninum.
Í Stoltenberg-skýrslunni er nefnt að meðal þess
sem Norðurlöndin gætu gert til að efla samstarf sitt
og samheldni á sviði öryggis- og varnarmála væri að
Norðurlöndin fjögur sem reka flugheri tækju öll þátt
í loftrýmiseftirliti yfir Íslandi, sem annars er skipu-
lagt af Atlantshafsbandalaginu. Að Svíar og Finnar,
sem eiga ekki aðild að NATO, tækju þátt í því væri
enn einn áfanginn að því að binda báðar þjóðir nán-
ari böndum við bandalagið.
Ekki er vænst formlegrar niðurstöðu í málinu
fyrir hönd finnskra stjórnvalda fyrr en í lok maí. - aa
LOFTRÝMISEFTIRLIT Dönsk orrustuþota á eftirlitsflugi. Rætt er
um að finnskar og sænskar taki líka þátt. NORDICPHOTOS/AFP
Norræn tillaga um að Finnar og Svíar taki þátt í lofthelgiseftirliti yfir Íslandi:
Ólíklegt að Finnar verði með
STJÓRNMÁL „Frjálslyndi flokkur-
inn er ekki að deyja,“ segir Guð-
jón Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sem tapaði
öllum sínum þingsætum á laug-
ardag. „Ég held áfram að vinna
fyrir minn flokk ef fólk vill það.“
Raddir eru uppi innan flokksins
um að Guðjón og forystan öll segi
af sér og boðað verði til lands-
fundar. Guðjón Arnar minnir hins
vegar á að stutt sé liðið frá síðasta
landsfundi, þar sem hann hafi
hlotið afdráttarlausa kosningu í
formannsembættið. „Það er hins
vegar ekki mitt að ákveða hvort
boðað verði til landsfundar heldur
miðstjórnar flokksins. Hún hittist
á morgun.“
Guðjón segist ekki eiga von á
öðru en að flokkurinn bjóði fram í
sveitarstjórnarkosningum að ári.
- bs
Guðjón Arnar Kristjánsson:
Flokkurinn er
ekki að deyja