Fréttablaðið - 29.04.2009, Side 18
MARKAÐURINN 29. APRÍL 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar
skrifar
„Þetta vakti forvitni mína því að ég hef aldrei skil-
ið hvers vegna Íslendingar ættu að flytja inn vatn en
mér finnst eiginlega liggja miklu beinna við að flytja
það út,“ segir Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur
í Borgarnesi. Hann keypti nýlega hálfs lítra vatns-
flösku undir merkjum Pinar frá Tyrklandi í Krón-
unni í Mosfellsbæ.
Flaskan, sem er með venjulegu lindarvatni og
flutt inn frá Danmörku, var seld með 55 prósenta af-
slætti, eða á 29 krónur stykkið, enda síðasti söludag-
ur skammt undan. Tappinn var settur á flöskuna í
apríllok 2008.
„Mér fannst merkilegt að við flyttum inn vatn frá
Danmörku á sama tíma og Kaupmannahafnarbúar
sjá fram á varanlegan vatnsskort. En ég var samt
miklu meira hissa þegar ég sá að þetta sjálfsagt ágæta
vatn hefði verið flutt til Danmerkur frá Tyrklandi,“
segir hann.
Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri hjá Kaupási, segir
að fjörutíu feta gámur, eða um fimmtíu bretti, af tyrk-
nesku vatni hafi verið fluttur til landsins og vatnið selt
í tilraunaskyni í öllum stóru Krónubúðunum.
„Við gerðum prufu til að sjá hvernig þetta kæmi út.
Það er mjög mikil sala á vatni, bæði hreinu og blönd-
uðu með til dæmis sítrónu eða ávöxtum, og það var
gott verð á þessu vatni.“
Móttökurnar hafa verið góðar en Kristinn telur að
vatnið komi ekki aftur. „Við erum alltaf að kanna hvað
markaðurinn vill. Fólk er hrifnara af íslensku vatni,
Kristal og Toppi, en erlendu vatni.“
Stefán bendir á að kranavatn sé miklu ódýrara og
betra en innflutt vatn. „Mikil orka fer í að framleiða
umbúðir og flytja vatnið þannig að þetta er fárán-
legt. Það er líka fáránlegt að Íslendingar kaupi vatn í
flösku úti í búð þótt það sé framleitt innanlands vegna
þess að vatnsframleiðslan kostar meira, þarf meiri
orku og vatnið er verra hvað gæðin varðar.“
Stefán sagði frá vatnskaupunum á bloggsíðu sinni
og fékk meðal annars viðbrögðin: „Getur það verið
að við séum að eyða dýrmætum gjaldeyri í að kaupa
þetta af Dönum?“ Kristinn segir að vatnið hafi verið
keypt og flutt inn fyrir bankahrun.
Tyrkneskt vatn flutt
inn í plastflöskum
Kaupás flytur inn vatn á flöskum frá Tyrklandi. Stutt er í síð-
asta söludag og vatnið selt með helmings afslætti.
VATN FRÁ TYRKLANDI Stefán Gíslason umhverfisfræðingur
keypti hálfslítra flösku með nafninu Pinar í Krónunni um daginn.
Flaskan kostaði 29 krónur með 55 prósenta afslætti og er vatnið
frá Tyrklandi. Stefán segist samt ekki skilja hvers vegna vatn sé
flutt inn þegar Íslendingar eigi miklu betra og ódýrara kranavatn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GÍSLASON
G E N G I S Þ R Ó U N
„Við erum á fullu að vinna í því
að setja gáttina upp og fara að
vinna gegn svínaflensunni í Mex-
íkó,“ segir Magnús Ingi Stefáns-
son, verkefnastjóri hjá TM Soft-
ware, dótturfélagi Nýherja.
Magnús fer fyrir teymi sem
vinnur að þróun og hönnun upp-
lýsinga- og samskiptagáttar fyrir
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) sem
notuð verður til að samræma starf
björgunarsveita og lækna á ham-
farasvæðum víða um heim.
Þetta er nýjung í starfi SÞ, sem
hefur aldrei haft yfir viðlíka tóli
að ráða.
Upphaflega var stefnt á að
keyra búnaðinn upp um miðj-
an næsta mánuð. Þegar svína-
flensan kom upp í Mexíkó um
helgina var ákveðið að setja allt
á fullt og koma búnaðinum í gagn-
ið ytra sem fyrst.
Eins og staðan var um hádegis-
bil í gær átti TM Software að skila
af sér öllu efni fyrir klukkan tíu
um kvöldið. Tveir menn frá Mic-
rosoft ytra unnu að sleitulaust alla
fyrrinótt að uppsetningu á vélbún-
aði í Mexíkó til að taka samskipta-
gáttina í notkun. „Ef allt gengur
vel ætti þetta að vera komið upp
í fyrramálið [í dag],“ sagði Magn-
ús í gær.
Grunnur var lagður að gáttinni
í kjölfar björgunarstarfa í Myan-
mar í maí í fyrra og þróaði TM
Software búnaðinn áfram í fyrra-
haust.
TM Software vinnur af málinu
í samstarfi við Microsoft í Banda-
ríkjunum og SÞ en hún byggir á
Microsoft-lausninni Sharepoint,
sem heldur utan um skjöl, verk-
efni, ferla og ýmis konar upplýs-
ingar.
Magnús segir Gísla Ólafs-
son, sem hefur unnið hjá Micro-
soft um árabil, eiga mestu þakk-
ir skildar vegna aðkomu Íslend-
inga að málinu. Hann vinnur hjá
alþjóðadeild Microsoft og aðstoð-
ar alþjóðastofnanir á borð við SÞ,
Rauða krossinn, og Alþjóðabank-
ann við að nýta tölvutækni betur
í viðbrögðum við náttúruhamför-
um. - jab
Íslendingar vinna
gegn svínaflensunni
TM Software hefur þróað samskiptagátt sem sam-
hæfir björgunarstarf á hamfarasvæðum fyrir SÞ.
Ríkisstjórn Póllands hefur samþykkt vara-
áætlun í evruvæðingu landsins.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir
því að landið uppfylli ekki grundvallarskil-
yrði til þátttöku í gjaldmiðilssamstarfinu
ERM-2 sem er nauðsynlegt fyrir upptök-
una.
Fyrri áætlun frá í fyrrahaust fól í sér að
zloty-inu yrði skipt út fyrir nýjan gjaldmið-
il eftir þrjú ár.
Reuters-fréttastofan bendir á að þrátt
fyrir þetta hafi ríkisstjórn Donald Tusk
forsætisráðherra lýst yfir vilja til að gera
sitt besta og ná fyrsta skrefi í átt að gjald-
miðlasamstarfi á fyrri helmingi ársins þótt
flestir hagfræðinga telji það afar ólíklegt.
- jab
FORSÆTISRÁÐHERRANN Afar ólíklegt þykir að Donald Tusk takist að
ganga í myntbandalag Evrópu og skipta út zloty-inu fyrir evrur innan þriggja
ára. MARKAÐURINN/AFP
Pólland bíður eftir evrunum
GÁTTIN BYGGÐ UPP Ef allt gengur að
óskum hafa Sameinuðu þjóðirnar nú
tekið í gagnið samskiptagátt TM Software
gegn útbreiðslu svínaflensunnar í Mexíkó.
MARKAÐURINN/VILHELM
Stoðir (áður FL Group) mun ekki
skila uppgjöri síðasta árs í lok
mánaðar eins og stefnt var að.
Í tilkynningu segir að á grund-
velli laga um verðbréfaviðskipti
sé félögum sem eingöngu hafa
skráð skuldabréf heimilt að birta
ekki uppgjör í kauphöll að því
gefnu að lágmarksfjárhæð hvers
skuldabréfs sé að minnsta kosti
50 þúsund evru á útgáfudegi bréf-
anna.
Talsmaður Stoða, segir í sam-
tali við Vísi að þótt ársreikning-
urinn verði ekki birtur muni hann
verða lagður fram að lokum. - jab
Stoðir skila
í sumar Vika Frá ára mót um
Alfesca 0,0% -21,4%
Bakkavör 2,7% -53,8%
Eimskipafélagið 0,0% -20,0%
Föroya Bank 0,0% -0,8%
Icelandair 0,0% -62,4%
Marel -12,2% -42,2%
Össur -0,8% -9,7%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.
Úrvalsvísitalan OMXI15 218
Úrvalsvísitalan OMXI6 635
*Miðað við gengi í Kaup höll á mánudaginn