Fréttablaðið - 29.04.2009, Side 32
29 200 171er sætið á lista breska dagblaðsins Sunday Times yfir 1.000 auðugust menn landsins sem Björgólfur Thor Björgólfsson vermdi á síðasta ári. Hann er dottinn af
nýjasta listanum sem birtur var um helgina.
milljarðar er fjöldi evranna sem þýski bank-
inn Deutsche Bank hagnaðist um á fyrsta
fjórðungi ársins.
krónu kostaði að kaupa eina evru í gær.
Á sama tíma fyrir ári kostaði ein evra rétt
rúmar 115 krónur.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Nýja Kaupþing hefur tekið upp
á því að bjóða öllum netvæddum
viðskiptavinum sínum upp á þá
nýjung að afþakka öll yfirlit á
pappír og fá þau þess í stað send
beint í netbankann. Umtalsverður
sparnaður fæst með slíku, að
sögn bankans, en þar innandyra
er reiknað með að aðgerðin geti
sparað hverjum og einum allt að
tíu þúsund krónur í pappírs- og
sendingarkostnað á ári. Bankinn
segir þúsund manns hafa þegið
þjónustuna. Þetta er svo sannar-
lega löngu tímabær bylting, sem
lengi hefur verið beðið
eftir þar sem nær
hver einasti lands-
maður hefur um
árabil verið ýmist
nettengdur eða með
aðgang að tölvu sem
þannig er háttað um.
Rafræn bylting
Það hljómar reyndar eins og
einkennilegasta tilviljun en
Íslendingar eru jafn margir og
fjöldi auðugustu einstaklinga í
Kína í árslok, samkvæmt spá
um auðsöfnun þar í landi sem
ráðgjafarfyrirtækið Bain &
Company gaf út á mánudag.
Milljarðamæringar í Kína voru
þrjú hundruð þúsund í lok síð-
asta árs en reiknað er með að
þeim fjölgi um tuttugu þúsund
á þessu ári. Afar ólíklegt er að
slíkar fregnir berist héðan í bráð.
Til að komast á lista kínverskra
auðmanna þarf viðkomandi að
eiga jafnvirði tveggja milljarða
króna hið minnsta. Samkvæmt
úttektinni búa flest-
ir þeirra sem loðn-
ir eru um lófana í
Guangdong-héraði
en þar hafa íslensk
fyrirtæki í
s j á v a r ú t -
vegi skotið
rótum síð-
ustu ár.
Kínverskir millar
Hætt er við að þessi löngu tíma-
bæra rafræna bylting bankans
geti haft gríðarleg dómínóáhrif í
för með sér. Miðað við að þúsund
viðskiptavinir Nýja Kaupþings
hafi afþakkað yfirlit með gamla
laginu stefnir í að hátt í tíu millj-
ónir króna hverfi úr þeim far-
vegi sem þær hafa verið í fram
til þessa. Með augum hagfræð-
ingsins felur þetta í sér að færri
tré þarf að fella til að prenta
yfirlitin og getur það haft áhrif
á skógarhögg og pappírsvinnslu
í Finnlandi. Þá gæti Pósturinn
orðið af umtalsverðum tekjum,
sem fram til þessa hafa skilað
sér hægt en örugglega í kassann
frá bönkunum. Störf póstburðar-
fólks gætu jafnvel verið í hættu.
Jákvæða hliðin er á móti sú að
hagur framleiðenda prentara og
bleks gæti vænkast þegar net-
verjar taka að prenta yfirlitin
út. Óvíst er hvort byltingin vegi
þungt utan landsteina þar sem
fjöldi Íslendinga er rétt á við
meðalbæ á meginlandi Evrópu.
Dómínóáhrif?
CINTAMANI ESTER
Dúnúlpa með hettu og loðkraga. Fylling
er 95% dúnn og 5% fiður sem gerir
úlpuna létta og hlýja.
CINTAMANI UNNDÍS
Heilrenndur jakki. Mjúk, vindheld skel
úr No Wind® efni frá
Pontetorto® á Ítalíu.
CINTAMANI DAGMAR
Sportleg Tecnostretch® peysa.
CINTAMANI MAGNÚS
Klassísk flíspeysa. Tecnopile® flísefni
frá Pontetorto.
CINTAMANI ELVA
Klassísk flíspeysa. Tecnopile® flísefni
frá Pontetorto. Mest selda flíspeysan
frá Cintamani!
CINTAMANI HILMIR
Vatnsfráhrindandi jakki með öndun úr
2.5 laga IceGuard® efni. vatnsheldir
rennilásar að framan og á vösum.
OPIÐ:
10-18 MÁN – FÖST.
11-16 LAUGARD.
1. MAÍ LOKAÐ
AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ
Rey
kja
nes
bra
ut
kapl
akri
ki
15.990.-áður 26.990.-
8.990.-áður 13.990.-
6.990.-áður 12.990.-
14.990.-áður 26.990.-
10.990.-áður 22.990.-
SPJARAÐU ÞIG
6.990.-áður 13.990.-