Fréttablaðið - 29.04.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er miðvikudagurinn 29.
apríl, 119. dagur ársins.
5.07 13.25 21.46
4.40 13.10 21.42
Mikið vildi ég að Björgvin Hall-dórsson væri meðal æðstu
ráðamanna þjóðarinnar. Það vant-
ar nefnilega talsvert grúv í þessa
gerilsneyddu pólitísku veröld. Það
vantar töffara með kjark sem þarf
ekki vandræðagang um völundar-
hús lýðræðisins til þess að koma
málum á braut beins lýðræðis.
MARGSINNIS heyri ég þá gagn-
rýni frá mönnum sem þekkja
betur til málanna en meðaljón-
inn að umræða um eitthvert mál-
efni sé ekki komin jafn langt og í
nágrannalöndunum eða sé ekki á
nægilega háu plani. Þetta er senni-
lega það versta sem stjórnmála-
menn heyra og því bregðast þeir
við með því að setja málin í far-
veg þaðan sem þau eiga að koma á
himinháu plani.
EVRÓPUMÁLIN hafa oft feng-
ið þessa einkunn. Mestu sérfræð-
ingar landsins hafa tjáð sig um það
með rökum og mótrökum en það
er eins og ævarandi byrjendabrag-
urinn losni ekki frá þessu bitbeini.
Evrópunefndir hafa verið settar á
laggirnar og skilað sínum álitum
en ekkert „þroskast umræðan“ eins
og spekingarnir segja. Nú hefur
verið settur á laggirnar stýrihópur
og eflaust vonast stjórnmálamenn-
irnir til að umræðan fikrist upp á
ögn hærra plan.
ÞETTA er náttúrulega alveg ágætt
að því leyti að við sem fylgjumst
með fáum alltaf ögn meira af upp-
lýsingum og getum því fóðrað
afstöðu okkar ágætlega. En svo er
það verstur fjári að þegar menn
eru orðnir býsna vel að sér í mál-
inu og hafa mótað vel ígrundaða
afstöðu þá kemur í ljós að ekki sé
hægt að taka afstöðu til málsins
uns farið hefur verið í aðildarvið-
ræður og samningurinn liggur á
borðinu.
ÞEGAR ég verð vitni að svona
hringlandahætti eða þá að leik-
þætti frá Ástþóri Magnússyni
óska ég þess heitast að lýðræðið
væri aðeins minna þrátt fyrir alla
sína kosti. Mín vegna mætti líka
vera minna af ferlum, sérfræði-
álitum og háum plönum en þeim
mun meira af áræðni, hreinskilni
og brjóstviti.
TIL dæmis ef Bjöggi væri í þessari
stöðu myndi hann örugglega segja,
„hey folks! Nýr stýrihópur; sama
málið. What´s it gonna be? Á þjóð-
in að fá að sing along eða ekki? Nú,
teljum þá í.“
ÞETTA er svo sem ekki á neitt sér-
lega háu plani en svei mér þá ef
þetta virkar ekki betur en farveg-
urinn margumtalaði sem málin
fara iðulega í.
Þankar á lágu
plani um ESB
H E I L S U R Ú M
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM
Án efa einn stærsti og glæsilegasti svefnsófasýningarsalur landsins.
Tilboð á svefnsófum af öllum stærðum og gerðum. Margir litir í boði.
COMODO
Svefnsófi
Áður 398.950 kr.
NÚ 279.263 kr.
TILBOÐ!20-30%
AFSLÁTTUR!
T140
Svefnsófi
Áður 229.700 kr.
NÚ 183.760 kr.
TILBOÐ!
OZI
gestarúmÁður 64.900 kr.
NÚ 51.920 kr.
TILBOÐ!
SOPHIA
SvefnsófiÁður 87.330 kr.
NÚ 69.864 kr.
TILBOÐ!
COUPLE
Svefnsófi
Áður 109.750 k
r.
NÚ 87.800 kr.
TILBOÐ!
1
2 3
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16