Fréttablaðið - 08.05.2009, Blaðsíða 23
Forréttur
Chorizopylsur (reykt ar)
og grillaðar með
arepas (brauði).
Arepas
1½ bolli vatn
1 bolli maísmjöl (P.A.N.)
klípa af smjöri
ögn af salti og sykri
Brauðið er mótað í
höndunum og grillað í
um 5 mínútur á hvorri
hlið.
Aðalréttur
200-250 g nautasteik
krydduð með salti og
pipar eða Red Roy-
steikarkryddi.
Meðlæti með aðal-
rétti.
Kartöflubátar með krydd-
jurtablöndu bakaðir í ofni
í um 50 mínútur.
Steikt niðurskorið
grænmeti
Rauðlaukur, púrrulauk-
ur, gulrætur, paprika,
léttsteikt á pönnu og
kryddað með salti og
pipar.
Sveppasósa
½ dós sveppasmurostur
matreiðslurjómi
blandaðir sveppir
klípa af smjöri
nautakjötkraftur
Sveppir steiktir á
pönnu, osti og rjóma
bætt út í og kryddað
með kjötkrafti.
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ALÞJÓÐLEGI FARFUGLADAGURINN verður haldinn hátíðlegur á
Álftanesi laugardaginn 9. maí. Boðið verður upp á gönguferðir og fuglaskoðun,
leiðbeiningar um fuglaljósmyndun og ýmsar upplýsingar um fugla, ferðir þeirra
og farleiðir og um náttúru Álftaness. www.umhverfisraduneyti.is
„Chorizo-pylsur eru vinsælar í
Kólumbíu,“ segir Carlos Mendez,
matreiðslumaður í Kjöthöllinni,
og nefnir að þær séu borðaðar á
sama hátt og pylsur með öllu hér á
Íslandi. „Arepas er brauð sem búið
er til úr hvítu eða gulu maísmjöli
og er mikið notað með mat í Suður-
Ameríku,“ segir hann og bætir við
að það sé það safaríkt að sósur eru
eiginlega óþarfar.
Carlos er fæddur í Kólumbíu og
kom hingað árið 1986 sem skipti-
nemi. „Nú er ég búinn að vera leng-
ur á Íslandi en í Kólumbíu,“ segir
Carlos sem bjó lengi á Skaganum.
Hann minnist þess að margt hafi
breyst í matarmenningunni hér
síðan þá. „Hrísgrjón voru þá aðal-
lega notuð í grauta, en ekki sem
meðlæti eins og nú er gert.“
Spurður um góð ráð við eldun
nautakjöts svarar hann: „Margir
gera þau mistök að vera alltaf að
skera í kjötið meðan á eldun stend-
ur, en kjötið gefur minna eftir
því sem það er meira eldað. Þess
vegna er ágætt að koma við kjötið
með þumlinum og finna þannig út
hversu mikið það er eldað.
Með kólumbísku ívafi
Carlos Mendez, matreiðslumaður í Kjöthöllinni, bauð starfsfélögum sínum á dögunum til sumargrill-
veislu þar sem hann bauð upp á grillaðar chorizo-pylsur og dýrindis nautasteik ásamt meðlæti.
FORRÉTTUR OG AÐALRÉTTUR AÐ HÆTTI CARLOSAR
Með þessu og hinu
Og enn af góðum ráðum frá
Carlosi: „Gott er að nota sérlag-
aða maríneringu sem hægt er að
fá í Kjöthöllinni á kartöflurnar og
baka þær þess vegna í ofni,“ segir
hann og bætir við að tilvalið sé að
vera duglegur við að grilla það
grænmeti sem til er í ísskápnum
hverju sinni til að hafa með steik-
inni.“ - vg
Carlos Mendez með
aðalréttinn og auð-
vitað er nautakjötið
rétt steikt.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
Næg ókeypis
bílastæði
við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr.
Salatbar 990 kr.
Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.
~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti
á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt
brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Nýr A la Carte og 4ra rétta seðill
Nánari upplýsingar á www.perlan.is
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI