Skinfaxi - 01.05.1931, Síða 12
112
SKINFAXI
þetta’ er norðan ólund og
ýmisháttar fleira.
Vœtuhrollur.
Hlúa lítt að himnabeð
hriðar gráu tjöldin,
veslings loftið vagar með
vætuhroll á kvöídin.
Úr Ijóðabréfi.
Kuldinn herjar okkur á,
er að berja gömul strá,
hrannir skerjaskaufar þjá,
ský eru hverjum degi hjá.
Stórhrið.
Ilríð og bölvun úti ala
illra veðra djöflafans.
Það er ekki um það að tala,
þetta er nú gamanið hans.
Hvítur skaflinn skefur sig,
skríður kind að barði;
hríðar öskrin hræða mig
sem hljóð úr kirkjugarði.
Bærir fangið felmtruð jörð,
færist þang um æginn;
slær á vanga hríðin hörð
hærulangan daginn.
Ferleg eru faðmlög ]iin
fjötur minna vona;
hjartans nepjunótlin min,
nístu mig ekki svona.