Skinfaxi - 01.04.1947, Blaðsíða 50
50
SKINFAXI
Stjórn mótsins skipuðu: Torfi Guðbrandsson formaður, Jó-
liánn Kristmundsson og Arngrímur Guðbjörnsson.
Dómarar voru: Hermann Guðmundsson, Arngrimur Ingi-
mundarson og Ólafur Sigvaldason.
Störf íþróttanefndar ríkisins 1943—46.
Iþróttanefnd ríkisins er skipuð til þriggja ára í senn. Hin
önnur í röðinni frá því að íþróttalögin voru sett lauk störfum
í lok síðasta árs. Hefur hún gert ítarlega skýrslu um störfin
þessi þrjú ár og sent Skinfaxa liana. Verður hér minnzt á
nokkur atriði úr skýrslunni, svo ungmennafélagar geti betur
fylgzt með störfum hennar, en þau snerta starfsemi ungménna-
félaganna mikið.
íþróttanefndina skipuðu þetta tímabil, Guðmundur Kr. Guð-
mundsson formaður, Daníel Ágústínusson ritari og Kristján
L. Gestsson gjaldkeri. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er i-
þróttafulltrúi rikisins, Þorsteinn Einarsson. Alls hélt nefndin
39 bókaða fundi.
Nefndin liefur fjallað um byggingu 40 sundlauga, 122 íþrótta-
valla og 49 íþrótta- og samkomuhúsa. í ýmsum tilfellum liefur
þó aðeins verið veitt sérfræðileg aðstoð og samþykktar teikn-
ingar. Viðast hefur ])ó um beinar framkvæmdir verið að ræða.
Alþingi hefur ])essi þrjú ár veitt íþróttasjóði kr. 2.050.000.00
sem gengið hafa til eftirgreindrar starfsemi:
1. Sundlauga ..........................kr. 1.171.855.00
2. íþróttavellir ....................... — 88.500.00
3. íþrótta- og samkomuhús .............. — 306.900.00
4. Skíðaskálar ......................... — 72.500.00
5. Gufubaðstofur ....................... — 19.200.00
0. íþróttanám .......................... — 30.000.00
7. Til íþróttakennslu IJ.M.F.f., f.S.Í. o. fl. — 296.000.00
8. Sérfræðileg aðstoð og styrkir til
áhaldakaupa ......................... — 27.745.00
Samtals kr. 2.078.700.00
Af þessari uppliæð eru kr. 28.700.00 afgangur frá næstu
þremur árum áður. Styrkir, sem þá voru veittir, en ekki not-
aðir. Það er eftirtektarvert að styrkir íþróttasjóðs 1941—40, kr.
2.008.125.00 hafa fætt af sér framkvæmdir sem kosta alls kr.
0.750.028.01. Er þetta bezti mælikvarðinn á þær ágætu við-
tökur, sem sú starfsemi hefur fengið um alll land, sem byggð er
á íþróttalögunum.