Skinfaxi - 01.04.1953, Blaðsíða 18
18
SIvINFAXI
FÁNI U.M.F.Í.
Á sambandsþingi U.M.F.Í., sem háð var í Hveragerði 1949,
var samþykkt, að fáni U.M.F.Í. skyldi vera Hvítbláinn.
Öllum fannst, vegna sögulegra raka, að Hvítbláinn væri
sjálfkjörið merki hreyfingarinnar. Engar tillögur komu fram
um aðra fánagerð. Hvítbláinn átti sinn sérstaka söng: „Rís
þú unga . . . .“ Enginn minntist á, að hann væri fyrst og fremst
fáni Stúdentafélags Reykjavíkur, og Umf. ættu aðra hugmynd
um fánagerð með sömu litum. Vegna þess að ég hygg, að
yngri kynslóðinni sé ekki kunnugt um mcrkan þátt og skyn-
samlegar tillögur Umf. í fánamálinu, ætla ég, mest til fróð-
leiks, að birta tillögur og greinargerð Umf. Akureyrar frá 1907
um þjóðfána.
Eftirfarandi ávarp sendi stjórn Umf. Akureyrar hrepps-
nefndum í landinu:
Háttvirta hreppsnefnd!
Ungmennafélag Akureyrar sendir yður kveðju Guðs og sína
með árnun góðs árs!
Eins og yður mun kunnugt vera, er þegar hafin sú hreyfing
í Iandi hér, er fer fram á, að þjóð vor taki upp sérstakan ís-
lenzkan fána, á láði og legi, og krefjist viðurkenningar á hon-
um sem sýnilegu tákni sjálfstæðis íslands.
Vér efumst ekki um, að öllum hugsandi mönnum og sönnum
íslendingum muni ljóst, hversu mikilvægt mál það er, sem
hér er um að ræða. En þá er og áríðandi, að menn um allt
land sýni það í verki og leggi því lið sitt, það er þeir mega.
Gerist það eðlilegast á þann hátt, að menn hvarvetna samein-
ist um að styðja fánahreyfinguna, í orðum og athöfnum, þ. e.
annars vegar gefi það öðrum skýrt til vitundar að þeir fylli
flokk þeirra, er viðurkenndan sérfáua vilja, og hins vegar
sjálfir viðhafi fánann og vinni þannig að því að ryðja honum
til rúms.
Til þess að gefa mönnum sem bezt færi á að neyta síns
frjálsa tillöguréttar um það, hvernig hinn tilvonandi íslenzki
fáni eigi að vera, leyfum vér oss að senda yður teiknaðar þær
tvær hugmyndir, er mestan byr hafa hlotið enn sem komið
er: Fána Stúdentafélags Reykjavikur — hvítan kross í feldi
blám — og þann, sem kenndur er við félag vort hér á Akur-
eyri, og að því einu leyti er frábrugðinn hinum, að blár kross