Skinfaxi - 01.04.1953, Qupperneq 37
SKINFAXI
37
unaráætlun, sem iniöast við að góðri þjálfun sé náð um miSj-
an júní.
Hafirðu engan æfingafélaga, þá æfðu þig einsamall. Nokkrir
af afreksgörpum síðustu vetrar- og sumar-Ólympíuleika höfðu
lengst af æft einir — kennaralausir — en verið trúir áætlun-
inni, iþróttinni og sjálfum sér. Sértu i vafa um eitthvað og
þú færð ekki upplýsingar um það í „Frjálsum iþróttum“, þá
máttu skrifa mér, eða kannske þekkirðu íþróttakennara, og
skrifaðu þá honum.
1. tímahil: 15. marz til 1. apríl
2. tímabil: 2. apríl til 15. apríl
3. tímabil: 16. apríl til 15. mai
4. timabil: 16. maí til 17. júni
1. tímabil:
Affærasælast er að æfa daglega, en gæta skal þess að þreyta
sig ekki. Gæta skal þess að vera hlýtt klæddur. Ilitaðu og
mýktu likama þinn með þvi að ganga og skokka til skiptis
50 m, 5 til 6 sinnum (250—300 m), gerðu fimleikaæfingar í
10 mín., — reyndu að fá framstórar hreyfingar — t. d. hlið-
beygjur, bolvindur, boibeygjur, bakfettur, armsveiflur, hné-
beygjur, fótlyftur og -sveiflur, armréttur í handlegu. Ljúktu
æfingunni með þvi að skokka 200 m.
Baðaðu þig og þerraðu líkama þinn vel. Á þessu tímabili
er leitazt við að afla þols, hraða, styrks og liðleika.
2. tímabil:
Nú fyrst skaltu byrja að æfa atriði íþróttar þinnar. Mundu,
að liver íþrótt er mynduð af margþættum viðbrögðum. Lið-
aðu íþróttina sundur í hin ýmsu viðbrögð. Æfðu þau hvert
fyrir sig. Lestu nákvæmlega um íþrótt þina og skoðaðu gaum-
gæfilega myndir. Þær eru oft góðir lærimeistarar, en apaðu
ekki um of iag einhverra kappa.
Nú lengir þú æfingarnar og þyngir viðfangsefnin, en engan
hamagang, engar hamfarir. Á þessu timabili skaltu reyna þig
við aðrar íþróttir en þá, sem er þér sérstaklega lmgstæð. Hver
veit, nema önnur liæfi þér betur?
3. tímabil:
í byrjun þessa tímabils áttu að vera búinn að afla þér sæmi-
legs þols, styrks og liðleika. Nú riður á að viðhalda því, sem
áunnizt hefur. En aðaláherzluna skal leggja á lag (stíl) og
aðferð (tækni). Við lok þessa tímabils á undirbúningsstiginu