Skinfaxi - 01.07.1954, Blaðsíða 7
SKINFAXI
55
Iþróttaliöllin í Vierumaki.
en matsalur á efri hæð þeirrar hægri. 1 turninum eða
sexlyfta steinbálkninu sem bindur þessar hyggingar,
eru svefnherbergi, lesstofur og setustofur. Dti er glaða
sólskin, lítils háttar snjór á jörðu, og vorgolan niðar 1
trjátoppunum. Að húsahaki er dalur með tvö lítil
stöðuvötn milli skógivaxinna bergása. Þar eru stökk-
bretti og sólskýli, og lítið eitt til hægri glyttir á rauö-
málaða haðstofu „Þangað skulum við fara í kvöld og
berja búkinn með hrísi,“ segir Nora.
Klukkan sex hefst fimleikasýning kvenna. Stúlk-
urnar sýna áhaldaleikfimi á hestum og tvöfaldri slá
og gera hinar erfiðustu æfingar með tækni og öryggi.
Serstaka hrifningu vekjá Arja Sehtinen og Raili Tuom-
inen, tvær lreztu leikfimiskonur landsins. Arja er 15
ára, hefur stundað íþróttina í 4 ár og m.a. verið a
fimleikaskóla. Raili er 18 ára og á svipaðan íþrótta-
feril að baki. Þær láta vel yfir kjöruni sínum. „Við
fáum ókeypis ferðir lil sýningarstaðanna. En strák-