Skinfaxi - 01.07.1954, Side 8
56
SKINFAXI
arnir hafa það þó ennþá betra. Þeir fá áhöldin og
búningana að auki.“ Báðar tóku þær þátt í Ölympíu-
leikjunum í Helsingfors, og báðar fara þær til Italíu
í sumar. Pellonen er grindahlaupari. Hann var Finu-
landsmeistari Ólympíuárið og hljóp fjögur hundruð
metrana á 53,6. Back hleypur einnig, en heldur sér
meira við jörðina. Hann er nú 25 ára gamall, hefm
æft frá tvítugu og átti eitt jarðarmetið — 400 m á 47,7
— við Ólympíuleikina 1952. Pelloncn starfar sein
iþróttakennari, en Back vinnur í verksmiðju. Báðir
hal'a þeir íþróttir að nokkru leyti sem atvinnu. --
Timinn líður fljótt í góðum félagsskap og eftir hálf
tíma gufubað í baðstofunni færist ró og þreyta yfir
mannskapinn.
Morguninn eftir hefst leikfimi karla. Hringir og slár
eru aðaláhöldin og árangurinn næstum furðulegur.
Lemmsieta, einn af beztu fimleikamönnum landsins,
sveiflar sér hring eftir hxáng á slánni við áköf fagn-
aðarlæti áhorfenda. Notkun hringjanna krefst þjálf-
unar og jafnvægis og vii'ðist hvoi’ugt á skorta.
Mótið er nú raunar á enda. Að loknum hádegisverði
hópast unglingarnir í bílana og aka heim, til að njóla
þess, sem eftir er páska. Og öll förum við mcð ánægju-
legar minningar frá Vierumáki. Sólin vai'par hvítri
birtu á veggi hallarinnar, sem áður dundu af lífsgleði
æskufólksins, innlukta háum trjátoppum, með hverf-
andi snjóflekki við grunninn.
Áholands Folkhögskola, 22. 4. 1954.
Frá inigmeunafélögum í Finnlandi
„Fram för ungdomen.“ Svohljóðandi fyi’irsögn birtist
í einu dagblaðanna hér í vetur. Hún var með feitu letri
og náði yfir hálfa síðu. Þessi vígorð ei’u einkennandi
fyrir þá haráttu, sem framin er í Finnlandi af æskunni
og fyrir æskuna. 1 hverju nýútkomnu dagblaði má