Skinfaxi - 01.07.1954, Side 9
SKINFAXI
57
lesa fréttir og nýjungar frá starfi ungmenna-, íþrótta-
og annarra æskulýðsfélaga, en einkum ungmennafélag-
anna. Starfsemi þessara samtaka gengur eins og rauður
þráður gegnum félagslif þjóðarinnar. Þá er æskan 1
öndvegi, sú sveit, sem á að yrkja og erfa landið.
Sænska ungmennasambandið, Finlands Svenska Ung-
domsförbund, samsvarar því finnska: Suomen Nuori-
sonliitto. Það skiptist í fjögur héraðasambönd, sem
síðan mynda 300 smærri deildir, með um það bil
30000 meðlimum. 230 þessara félaga hafa eigið félags-
lieimili til umráða, 70 eiga heimkynni sín í húsum auii-
arra stofnana. Starfsemi þessara félaga einkennist af
spennandi áhuga. 1 stað þess að hafa dýra sendi-
kennara með ólíka sérmenntun ráða héraðasamböndin
sérstakan leiðbeinanda, hvert fyrir sig. Leiðbeinandinn
fcr frá einu félagi til annars, veitir tilsögn um íþróttii,
leiðir umræður, æfir leikrit og myndar námshringi,
sem allir skipta við einn og sama bréfaskóla, Hermous
í Svíþjóð. Á þennan hátt nema ungmennafélagar eitt
og annað, sem við kemur atvinnulífinu. Tungumá’,
bólunenntir, listir og annað, sem þroskar hugsana- og
tilfinningalífið, er einnig á dagskrá. Leiðbeinandinn
hefur um hönd almenna efnahagsrannsókn og flytur
áróður fyrir sparisjóði, sem til endurgjalds greiða
nokkuð af kaupi leiðbeinanda. Hann sýnir og kvik-
myndir og tekur umræður á stálband, sem flytur frélt-
irnar frá einu félagi til annars. Ungmennafélögm haía
samvinnu við hin opinberu bókasöfn og sjá um fynr-
lestra fyrir almenning. Blandaðir kórar eru í flestum
félögum, en hinir mörgu strokhljóðfæraleikarar eru
beinir arftakar gömlu fiðlaranna. Fimmta hvert ár
senda þessi félög yfir fjögur þúsund þátítakendur á
norræna tónlistarhátíð, og það er meira en eitt prósent
af sænskri íbúatölu landsins.
Að skýra nánar frá starfsemi ungmennafélaganna í
Finnlandi, lífi og baráttu þessa fólks og persónuleguni