Skinfaxi - 01.07.1954, Síða 22
70
SKINFAXI
Sandgerði, og þar sé ég og hitti að máli Austfirðing og Ey-
firðing, sem voru að koina af æfingu, hressir og glaðir. Báðir
höfðu þeir verið með i víðavangshlaupi í. R., en sem kunnugt
er, unnu piltarnir þrír úr héraðssambandi Eyjafjarðar 3 manna
sveitakeppnina.
Megi fordæmi þessara ungu manna verða öðrum ungum ís-
lendingum til eftirbreytni.
„Drauma-mílan“-
Þessu nafni hafa lieimsblöðin og íþróttamenn nefnt það
takmark að lilaupa eina enska mílu á minna en 4 minútum.
Til þess að ná þessu takmarki liafa hlauparar um allan heim
leitazt við að bæta hlaupalag (hlaupatækni) sitt og efla likams-
færni sína og þol.
Á þessu vori tókst enska hlaupagarpinum Bannister að ná
þessu takinarki í keppni við ágæta félaga, t. d. Chattaway, sem
gat sér frægðarorð á síðustu Ólympíuleikum.
Bannister hefur lengi verið i hópi beztu hlaupara heimsins,
og orð hefur verið haft á hinu fagra og létta hlaupalagi hans.
(Þegar myndasamstæða af hlaupalagi Bannister berst Skin-
faxa, mun hún verða birt hér í þáttunum). Með þvi að Bannist-
er hefur látið drauminn rætazt, hefur enn sannast að sé vilji
fyrir hendi, þá er hægt að yfirstíga hið óvæntasta.
í keppninni um „drauma-míluna“ höfum við íslendingar
ekki tekið þátt, en við eigum annan hlaupa-„draum“ og hann
er sá, að íslenzkum lilaupara takist að hlaupa 5 km. vegar-
lengd á skemmri tíma en 15 mín. Við eigum hlaupara, sem
nálgast þetta takmark, en það er Eyfirðingurinn Kristján Jó-
hannsson. Með síðasta rneti hans á þessari vegarlengd vantar
okkur rúmar 7 sek. upp á, að draumurinn rætist. En til þess
að svo megi verða, þurfum við meira til en það eitt, að Kristján
æfi. Við þurfum að eignast fleiri hlaupara, sem iðka 5 og 10
km hlaup. Við eigum mörg góð hlauparaefni, en þau þurfa að
taka hlaupaæfingar sínar alvarlegri og markvissari tökum. Nú
er ár, þar til landsmót UMFÍ fer fram á Akureyri. Þá verða
5 km hlaupnir á hinni ágætu hlaupabraut Akureyrar. Allir
þeir jiiltar, sem hafa hug til þolhlaupa, ættu nú að miða æf-
ingar sínar þegar við þetta hlaup og veita Kristjáni keppni
góða, svo að hann eða þeir fái 5 km „drauminn" til þess að
rætast. Þetta er djarflegt íþróttalegt verkefni, sem ungum
léttleikamönnum ætti að vera hvatning til æfinga og þjálfunar.
Er ég hef rætt þetta í liópi ísl. hlaupara, þá hafa þeir liaft
orð á því, að við Kristján væri erfitt að fást. Hann væri íþrótta-