Skinfaxi - 01.07.1954, Qupperneq 43
SKINFAXI
91
Samnorræna sundkeppnin
A þessu sumri er enn háð sundkeppni milii
Norðurlandaþjóðanna. Fyrir þrem árum var slik
sundkeppm milli sömu þjóða, og sigruðu Islend-
mgar þá glæsilega. Þá bar sú þjóðin sigur úr být-
um, er flesta átti þátttakendur miðað við fólks-
fjölda. Syntu þá 36 þús. Islendingar hina tilteknu
vegarlengd, 200 m.
I þessari keppm, sem nú stendur yfir, sigrar su
þjóðin, er mest eykur þátttakendatöluna frá árinu
1931. Mun þ ví ýmsum þykja tvísýnt um sigur ís-
lendinga að þessu sinni. Þó er langur vegur frá, að
íslendingar þurfi að örvænta um sigurinn. Syndí
15—20 þús fleiri íslendingar nú en árið 1951, geta
þeir bæglega unmð. Eru miklar líkur til, að þetta
geti tekizt, ef allir leggjast á eitt. Er vonandi, að
landsmönnum blaupi nú kapp í kinn, og þeir sýni,
bvað í þeim býr, þegar bæfilegur þjóðarmetnaður
kyndir undir.