Skinfaxi - 01.07.1954, Page 47
SKINFAXI
95
Fréttir og félagsmá!
Norræna æskulýðsmótið.
Eins og frá var skýrt i síðasta hefti Skinfaxa verður háð
norrænt æskulýðsmót á LaugarVatni dagana 1.—C. jiilí. Dag-
skrá mótsins verður mjög fjölbreytt, erindi, kynnirigarferðir
um nágrennið, kveðjur erlendra fulltrúa, söngur og frjáls
skemmtiatriði. Sunnudaginn 4. júlí verður samkoma í Þrastar-
skógi í sambandi við mótið. Verður þar guðsþjónusta, glímu-
sýning o. 11.
Nú er vitað, að þátttaka í mótinu verður góð. Um 30 nor-
rænir gestir munu koma til landsins til að vera á mótinu. ís-
lenzkir þátttakendur munu ekki verða færri. Má því gera ráð
fyrir, að á Laugarvatni verði 60—70 manns þessa daga.
Ættu Umf. úr nágrannasveitum, — og raunar lengra að, ef
þeir eiga þess kost, — ekki að setja sig úr færi að koma til
Laugarvatns, meðan mótið stendur yfir og fylgjast með störf-
um þess.
Dr. Richard Beck og frú komin.
2. júní komu til landsins þau Richard Beck prófessor og
kona hans. Hafa þau lijón þegar ferðast allviða, en prófessor-
inn hefur flutt kveðjur frá Vestur-íslendingum og ávörp á
ýmsum mannamótum. Richard Beck mun flytja erindi á ýms-
um mótum Umf. í sumar, svo sem i Þrastarskógi, á Þjórsár-
móti og víðar.
Nýr doktor í íslenzkum fræðum.
12. júní siðastl. varði Halldór Halldórsson dósent doktors-
ritgerð sína íslenzk orðtök. Dr. Halldór Halldórsson er öllum
landsmönnum kunnur af útvarpsþáttum sínum um íslenzkt
mál. Doktorsritgerðin er nú komin út, og er hún mikið rit,
416 bls. í allstóru broti. Hér er áreiðanlega um að ræða bók,
sem mikill fengur er að, ekki aðeins fyrir visindamenn, held-
ur fyrir alla þá, sem islenzku máli unna. 830 orðtök eru hér
rakin til uppruna og útskýrð. Má fullyrða, að fáar doktors-
ritgerðir séu girnitegri til fróðleiks og skemmtilegri fyrir
alþýðu manna. En alþýðumenn á íslandi hafa alltaf látið sér
títt um islenzkt málfar og ýmsar myndbreytingar málsins.