Skinfaxi - 01.07.1954, Side 48
96
SKINFAXI
Skrifstofa U. M. F. f.
Lindargötu 9 A, efstu hæð, er opin á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 16—19. Auk venjulegra málefna U. M. F. I. annast
hún afgreiðslu og innheimtu Skinfaxa.
Munið eftir að greiða Skinfaxa.
Gjalddagi Skinfaxa er 1. okt. Þau Umf., sem ekki hafa sent
áskriftagjöldin fyrir 1953 eða lengri tíma eru alvarlega á-
minnt um að gera skil hið fyrsta. Allur dráttur á greiðslunni
veldur útgáfunni miklum erfiðleikum.
Kvikmyndir af iandsmótum U. M. F. í.
U. M. F. í. á kvikmyndir frá þremur landsmótum, sem lán-
aðar verða Umf. til sýningar. Myndir þessar eru frá lands-
mótunum á Hvanneyri, .Laugum og Hveragerði. Kvikmyndin
frá Eiðamótinu er enn ekki fullgerð. Kostnaður við þessar
kvikmyndir er mjög mikill og hefur verið ákveðið að félögin
greiði kr. 50.00—150.00 fyrir sýningu á þeim. Umf. sem óska
eftir að fá myndir þessar leigðar, ættu að senda um það
beiðni til U. M. F. 1. með nokkrum fyrirvara.
Bréfaskipti.
Ungur Norðmaður óskar eftir bréfaskiptum við ungan ís-
lending. Hann er 23 ára, hefur áhuga á félagsstörfum, útilífi
og ferðalögum. Hann segist geta stautað sig fram úr íslenzku,
en vildi helzt fá bréf á Norðurlandamáli. Hann les einnig
ensku, þýzku og lítils háttar frönsku. Heimilisfang hans cr
Sersjant Öystein Skarheim, Sambandskompaniet. Brigh, Felt-
post 50, Norge.
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélags íslands.
Pósthólf 406. — Reykjavík.
Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri: Stefán Júlíusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
Félagsprentsmiðjan h.f.