Skinfaxi - 01.04.1955, Síða 12
12
SKINFAXI
öfgum og ofstæki í milljónatali, svo að nefna mætti
bæði blindni og brjálsemi. En alls staðar á það við,
sem Klettafjallaskáldið kvað:
„Þvi bölvun lands og heims er her,
sú höfðatala fægð og steypt,
sem venst að láta siga sér.“
Þess vegna er svo áriðandi að hafa einhverjar
menntastofnanir, sem gera einstaklingana ál)vrga
gagnvart mannfélaginu. Þess vegna vilja Sameinuðu
þjóðirnar, að uppeldi frjálsra og hugsandi manna
komi í staðinn fyrir uppeldi hermanna.
Þessi viðhorf erlendra manna nefni ég hér til að
minna á það, að þetta vandamál er eklci staðbundið.
Það er mannlegt.
Ég tel, að á þessu sviði hafi ungmennafélögin gegnt
miklu hlutverki, sem þau eigi enn að rækja. Þau eiga
að kenna mönnum að hugsa, nota dómgreind sina og
temja þeim góða siði i samlífi og umgengni.
Meðul þessa uppeldis geta verið mörg, svo sem um-
ræður á málfundum, félagslegar skemmtanir og
keppni í leikjum og íþróttum. Allt félagjsstarf, sem
unnið er af þegnskap og heilindum er jákvætt og
stefnir að þessu marki, því að það kennir að meta
félagann og félagana og laka jafnan tillit til þeirra.
Slíkt uppeldi skortir nú mannkynið mest.