Skinfaxi - 01.04.1955, Page 14
14
SKINFAXI
vaxtarskilyrði. Var þá sú ákvörðun tekim að taka upp
girðinguna og selja, en flytja trjáplönturnar heim á
bæi félagsmanna, ef þær gætu vaxið þar í görðum.
Og þar urðu sumar þeirra upphaf að trjárækt, sem
veitt iiefur ríkulegan yndisarð í öll þau ár, sem síðan
eru liíðin.
U.M.F. Bifröst fékkst ekki við skógrækt aftur fyrr
en árið 1945. Þá átti félagið kost á nokkrum hundr-
uðum birkiplantna, sem einn af félagsmönnum liafði
sáð til og alið upp í garði sínum. Einhverjum datt það
snjallræði í hug að fá leyfi sóknarnefndarinnar til
þess að gróðursetja þessar plöntur í kirkjugarðin-
um í Holti. Þetta gekk allt að óskum. Birkið stendur
norðan til í garðitnum og dafnar vel.
Tveim árum síðar liófst samvinna með U.M.F. Bif-
röst og Skógræktarfélagi Vestur-lsfirðinga. Skógrækt-
arfélagið hafði þá ákveðið að reyna að koma upp
trjárækt í liverjum hreppi sýslunnar. Lagði skóg-
ræktarfélagið til girðingarefni og plöntur og valdi
Útsýn úr Þverárgerði. (Ljósm.: Jóhanna Kristjánsd.).