Skinfaxi - 01.04.1955, Page 34
34
SKINFAXI
ÍÞRDTTAÞÁTTUR XXX:
(‘tJinaróion :
inarááon :
i't’fÍM’ h/fttt/ttitýetrgMif
í síðasta þætti skrifaði ég um það, að snemma yrði að hefja
þjálfun og æfingu, ef ungmennafélögin ættu að fá vel þjál'f-
að og æft íþróttafólk á 9. landsmót U.M.F.Í. á Akureyri á næst-
komandi sumri. I>að er gleðiefni, að víða af landinu berast
fréttir um mikinn undirbúning undir þátttöku í mótinu.
Til þess að styrkja enn betur þessi hvatningarorð mín, set
ég hér smákafla um tvo þekkta hlaupagarpa frá tveini síðustu
Ólympíuleikum. Ég hef valið þá úr hópi hlaupara, vegna þess
að hlaupin þurfum við að efla hér meir en orðið er.
Emil Zatopek.
E. Zatopek er fæddur 22. sept. 1922 i Koprinivice í Tékkó-
slóvalcíu. Þó að hann væri á s.l. sumri nær þvi 32 ára, kom
hann enn mjög við sögu þolhlaupanna. Okkur liefur víst alla^
l'urðað á liinu miklla þoli Zatopeks og þeim feikna liraða, sem
honum tekst að halda á hlaupum um langa vegu. Og margir
spyrja: livar endar þetta? Þóttu afrekin ekki furðuleg hjá
Hannes Kolomainen, Paavo Johannes Nurmi, Gunter Hagg, svo
að einhverjir séu nefndir af hlaupagörpum lieims á undan
Zatopek. En hvað er að ske? Eru ekki að koma fram á braut-
irnar lilauparar, sem færa afrek Zatopeks í skuggann? Jú, t.
d. Vladimir Kuc (Kuts) og Christopher John Cliataway. Bak
við þessi afrek liggur fyrst og fremst vinna — þjálfun og æfing
.— hugsun, einbeiting að lausn verkefnis — og meðfæddir eig-
inleikar.
Við skulum athuga þetta í sambandi við Zatopek.
Tékkneskir sérfræðingar, sem hafa athugað Zatopek, geta
þess að liann sé fæddur með óvenjulega stórt lijarta, sem hef-
ur í för með sér rnjög hægan hjartslátt (hægan púls). Röntgen-