Skinfaxi - 01.11.1965, Blaðsíða 15
Sundkeppnin fór fram í nýstárlegri sundlaug, sem komið var upp á mótssvæSinu.
Sögusýning
Þá fór fram söguleg leiksýning í ein-
um þætti: „AÐ ÁSHILDARMÝRI" eftir
séra Sigurð Einarsson í Holti. Félagar úr
umf Hrunamanna léku, leikstjóri var Emil
Ásgeirsson í Gröf. Leiksýningin vakti mikla
athygli og þótti takast vel. Þetta var mjög
sérstæð leiksýning. Leiksviðið var við enda
stóra sýningarpallsins, og voru leikmunir
flestir „smíðaðir" úr torfi og grjóti. Þá vakti
það ekki litla eftirtekt, að leikendur komu
allir þeysandi á hestum til leiksviðsins,
klæddir fornum bændabúningum.
í lok hátíðardagskrárinnar flutti Sigurð-
ur Greipsson, formaður Héraðssambandsins
Skarphéðins, ávarp, og var gerður góður
rómur að máli hans.
Lúðrasveit Selfoss undir stjórn Ásgeirs
Sigurðssonar lék milli dagskráratriða.
Hópsýningar
Þá fóru fram á stóra leikvanginum hóp-
sýningar í fimleikum pilta og stúlkna úr
Skarphéðni. Þetta munu vera einhverjar
stærstu fimleikasýningar • hér á Iandi, og
þótti áhorfendum það sæta furðu hversu
heildarsvipur sýninganna var góður. Það
þarf góða kennslu og mikinn áhuga og
starf þátttakenda úr svo víðlendu héraði
til að skapa slíka sýningu.
Fyrst sýndu nærri 100 piltar undir stjórn
Þóris Þorgeirssonar íþróttakennara en síð-
an 80 stúlkur undir stjórn Mínervu Jóns-
dóttur. Þau Þórir og Mínerva sömdu æf-
15
SKINFAXI