Skinfaxi - 01.11.1965, Page 39
Þrastalimdur tekinn til starfa
Hinn nýi veitingaskáli UMFÍ, Þrasta-
lundur, tók til starfa á s.l. sumri, og
rættist þar með gamall draumur ung-
msnnafélaga um að endurreisa þennan stað.
Eins og kunnugt er stendur Þrastalundur
í Þrastaskógi í Grímsnesi, skammt frá
Sogsbrúnni, en þarna er eitt fegursta skóg-
arsvæði landsins. í síðasta hefti Skinfaxa
er gerð, grein fyrir byggingu og stærð
Þrastalundar hins nýja.
Skálinn var opnaðurí júlímánuði. Hjónin
Hafsteinn Þorvaldsson og Ragnhildur Ing-
varsdóttir á Selfossi sáu um rekstur skálans,
en Hafsteinn liafði einnig haft umsjón með
byggingu skálans fyrir hönd stjórnar UMFÍ.
Það kom brátt í ljós að almenningur
sýndi hinum nýja veitingastað verðugan á-
liuga og kaus að eiga þar áfangastað á ferð
sinni um Suðurland. Fólk í hinum þéttbýlu
byggðum Suðvesturlands gerði sér tíðar
ferðir þangað, enda er það mjög hæfilegt
dagsferðalag á frídögum.
Segja má, að Þrastalundur sé lykillinn að
Þrastaskógi, sem um árabil hefur verið í
hálfgerðri gleymsku, enda þótt þarna sé
einn fegursti og gróskumesti staður sunnan-
lands. Þegar fólk kemur í Þrastalund opn-
ast því sýn in í skóginn, og það er vilji
ungmennafélaganna að almenningur fái að
njóta þeirrar ánægju, sem náttúrufegurð
Þrastaskógar veitir öllum, sem þangað koma.
Þrastaskógur fékk líka margfalt fleiri heim-
sóknir í sumar en undanfarin ár, og marg-
Snyrldlegur frágangur einkennir
Þrastaluná og umhverfi hans.
ir lýstu hrifningu yfir þessum friðaða stað.
Inni í skóginum er unnið að gerð mynd-
arlegs íþróttavallar í fögru og sérkennilegu
umhverfi, og verður hann væntanlega full-
búinn á næsta ári.
Þrastalundur var opinn allr til loka sept-
embermánaðar, og var aðsókn að skálanum
ágæt, og rekstur hans gekk mjög vel. Gestir
voru mjög ánægðir með alla fyrirgreislu á
sraðnum, og má því segja, að vel liafi verið
af stað farið, enda þótt við margi byrjun-
arörðugleika hafi verið að etja.
Það horfir því vel um framtíð Þrasta-
Iundar og Þrastaskógar. Mikilvægum áfanga
í starfsemi samtakanna er náð, og allir ung-
mennafélagar verða að standa saman um
þessar mikilvægu eignir sínar og styðja og
styrkja framkvæmdir á þessum góða fram-
tíðarstað. Þrastalundur opnar að nýju að
vori, og býður alla góða gesti velkomna.
SKINFAXI
39