Skinfaxi - 01.11.1965, Síða 42
ingu íþróttaleikvangs. Hafði námskeið í
knattspyrnu og frjálsum íþróttum.
Umf Sncefell á íþróttavöll og ræðir um
byggingu félagsheimilis. Skemmti- og í-
þróttalíf mikið hjá féiaginu. Skemmtiferð
farin í Þórsmörk. íþróttanámskeið haldin
í handknattleik og frjálsum íþróttum.
Umf Víkverji í Reykjavík er í öruggum
vexti. Félagatala nú komin í 80. Félagið
stóð fyrir glímukennslu allan sl. vetur í
samyinnu við UMFÍ. Þátttakendur í glímu-
æfingunum voru 52. Félagið sendi úrvals-
flokk glímumanna á landsmótið að Laug-
arvatni og sýndi hann glímu á kvöldvök-
unni 3. júlí. Ennfremur sendi félagið í-
þróttamenn í keppnisgreinar mótsins. Þá
hyggst félagið skapa aðstöðu fyrir ung-
mennafélaga utan af landi sem dveljast
tímabundið í Reykjavík, til íþróttaæfinga
og annarra félagsstarfa eftir því sem efni
standa til. Er þessu komið á framfæri hér
vegna þeirra sem vildu notfæra sér þessa
aðstöðu.
Stjórn umf. Víkverja, frá vinstri: Sigurð-
ur Sigurjónsson, Halldór Þorsteinsson,
formaður, og Valdimar Óskarsson.
Umf Æskan í Miðdalahreppi ræðir um
byggingu búningsklefa við Grafar-laug.
Framkvæmdir hafa dregizt vegna fjárskorts.
Iþróttafélagið Höfrungur, Þingeyri, hafði
námskeið í frjálsum íþróttum og knatt-
leikjum. Tvær skemmtiferðir farnar á árinu.
Umf Stefnir í Súgandafirði hefir fjöl-
breytt íþrótta- og skemmtanalíf. Tveir fyr-
irlestrar fluttir í félaginu um íþrótta- og
félagsmál.
íþróttafélagið Grettir, Flateyri, héfir ára-
mótadansleik með fjölbreyttri dagskrá.
Unnu að því 25 til 30 félagsmenn. Dag-
skrárefni annáll ársins. — Dans. Fyrirlest-
ur í félaginu um íþróttir og kvikmynd
sýnd af afreksmönnum. Félagið tók þátt í
fjölda keppna og sá um barnakeppni HVÍ
og Norrænu skíðagönguna. Á íþróttasvæði
í byggingu. Trjárækt stunduð í félaginu.
Umf Onundur hefir fjölbreytt félagslíf.
Fjallgöngur iðkaðar, jólatréssamkoma hald-
in. Ástand í bindindismálum gott og fund-
arsókn góð þá sjaldan fundir eru haldnir.
Urrif Vorblóni, Ingjaldssandi, stundar
trjárækt í trjáreit félagsins. Skemmtanalíf
gott. Félagið á bókasafn, 786 bindi. Fjöldi
útlána 470. Tala notenda 29.
Umf Mýrarhreþps æfði leikritið Grænu
lyftuna og fékk leikstjóra, Ingu Þórðar-
dóttur, sem stjórnaði æfingum. Leikritið
sýnt 9 sinnum á félagssvæði HVÍ. Dans-
leikir oftast á eftir sýningum. Farin
skemmtiferð í Vatnsfjörð. Þátttaka í í-
þróttanámskeiðum HVÍ. Félagið hafði all-
42
SKINFAXI