Skinfaxi - 01.06.1971, Blaðsíða 5
14. LANDSMÓTIÐ =j''JANI)SMÓT
ER AÐ HEFJAST
Ungmennafélagar hugsa jafnan með
tilhlökkun til næsta landsmóts. Núna,
skömmu fyrir sjálft mótið, er eftirvænt-
ingin í hámarki, |iar sem ungmennafélag-
ar um allt land búa sig undir þátttöku af
kappi. Meðal almennings verður líka
vart verulegrar eftirvæntingar eins og
jafnan endranær. Ástæðan er fyrst og
fremst sú, að landsmót ungmennafélag-
anna eru jafnan til fyrirmyndar um góða
íþróttakeppni, menningarlega skemmtan
og góða útivist fyrir fólk á öllum aldri.
Mikið hefur verið vandað til undirbún-
ings 14. landsmóts UMFÍ á Sauðárkróki,
en sem kunnugt er, sér Ungmennasam-
band Skagafjarðar um undirbúning og
framkvæmd mótsins. Á staðnum hefur
verið unnið mikið og gott starf, sem
glöggt má sjá í þeim glæsilegu íþrótta-
mannvirkjum og góðu aðstöðu, sem sköp-
uð hefur verið á staðnum. Meginhluti
Stefán Pedersen
form. lands-
mótsnefndar.
undirbúningsstarfsins liggur þó í þrot-
lausri skipulagningu og undirbúningi
smárra atriða og stórra, sem auðvitað er
nauðsynleg til þess að framvinda allra
mótsatriða verði snurðulaus. í allt þetta
hefur landsmótsnefnd, og þá sérstaklega
formaður hennar, Stefán Pedersen, lagt
geysilega vinnu árum saman. Samvinna
framkvæmdaaðila við bæjaryfirvöld á
Sauðárkróki hefur verið með ágætum.
íþróttamannvirki.
Sundlaugin á Sauðárkróki er einhver
hin vandaðasta á landinu með rúmgóðum
áhorfendapöllum. Á grasi gróinni flöt
sunnan laugarinnar verður hluti starfs-
íþróttakeppninnar háður. Þá tekur við
hinn nýi grasvöllur, sem er hinn ágætasti
leikvangur, enda hefur árað vel til upp-
græðslu hans. Hlaupabrautir verða allar
á grasi, 6 100 m. brautir og 4 hringbraut-
ir. Landsmótskeppendur hafa alltaf orðið
að hlaupa á grasbrautum nema á Akur-
eyrarmótinu 1955 og á Laugarvatnsmót-
inu 1965, en vonazt er til, að grasbraut-
irnar á Sauðárkróki verði með bezta móti
Aðhlaupsbrautir langstökks og jrrístökks
verða jarðvegs- og malarbrautir og kast-
hringir verða steyptir. Fyrir sunnan gras-
völlinn er góður malarvöllur, þar sem
gert er ráð fyrir að tveir knattspyrnu-
SKINFAXI
5