Skinfaxi - 01.06.1971, Blaðsíða 6
leikir mótsins verði háðir, en úrslitaleik-
urinn verður á grasvellinum. Sunnan mal-
arvallarins rís nýleg bygging gagnfræða-
skólans á Sauðárkróki, og þar mun mót-
stjórnin hafa aðsetur sitt.
Lega allra þessara mannvirkja er hag-
anlega skipulögð, en þar við bætist ein-
stætt áhorfendasvæði af náttúrunnar
hálfu, sem eru Nafirnar, háir grasigrónir
malarkambar, sem liggja meðfram móts-
svæðinu endilöngu að vestan. Ur þessum
brekkum geta þúsundir mótsgesta fylgzt
með öllu, sem fram fer á mótssvæðinu.
Vestur af malarvellinum gengur lægð inn
í brekkurnar, Grænaklauf. Neðst í henni
er risinn stór trépallur fyrir körfuknatt-
leik, sýningar, hátíðarsamkomu og
Úrslit í 100 m. á Iandsmótinu 1957. Ólafur
Unnsteinsson (HSK) sigrar, á undan Herði
Lárussyni (USAH) og Hergeiri Kristgeirssyni
(HSK).
skemmtiatriði. Framkvæmdir við íþrótta-
mannvirkin hafa verið á vegum Sauðár-
króksbæjar í góðu samráði við landsmóts-
nefnd og ungmennafélaga á staðnum.
Tjaldbúðir.
Tjaldbúðir keppenda verða rétt við *■-
aðalsvæðið austan Skagfirðingabrautar
á tveim afmörkuðum svæðum, ef þörf
krefur. Tjaldbúðir mótsgesta verða hins
vegar einkum á tveim svæðum. Annað
þeirra, almennar tjaldbúðir, verður á tún-
um uppi á Nöfunum, kippkorn vestan
svæðisins. Úr þeim tjaldbúðum er stutt
niður á mótssvæðið, enda verður hlið inn
á svæðið þar rétt hjá.
Annað tjaldbúðasvæði verður einnig
þar uppfrá allmiklu norðar. Það er eink-
um ætlað þeim, sem koma á einkabílum
til mótsins — fjölskyldutjaldbúðir. Bíla-
stæði eru við tjaldsvæðin í báðum tilfell-
um. Lögð er áherzla á góða almenna
þjónustu fyrir ferðafólk, því ekki er vafi
á að margir, bæði fjölskyldur og eínstakl-
ingar, munu leggja leið sína á mótið. Um
Öll slík atriði vísast til leikskrár mótsins,
sem seld verður á mótinu.
Fjölþætt íþróttakeppni.
Keppnisgreinar eru að mestu leyti þær
sömu og á síðustu landsmótum. Keppt er
í 12 frjálsíþróttagreinum karla og 8
kvennagreinum, þar á meðal 400 m.
hlaupi kvenna, sem er ný landsmótsgrein.
I sundi er keppt í 5 karlagreinum og 5
kvennagreinum, þar á meðal 100 m.
baksundi kvenna, sem kemur í stað 50 m.
baksunds. í starfsíþróttum koma tvær
nýjar kvennagreinar á dagskrá, þ. e.
pönnukökubakstur og vélsaumur, en alls
er keppt í 12 starfsíþróttagreinum. í
6
S KI N FA X I