Skinfaxi - 01.06.1971, Blaðsíða 26
Frá starfi
ungmennafélaganna
Héraðsþing: UNÞ
Héraðsþing Ungmenna-
sambands Norður-Þing-
daginn 20. júní s.l. á
eyinga var haldið sunnu-
Kópaskeri. Þingið sóttu
f.h. UMFÍ þeir Hafsteinn
Þorvaldsson og Sigurður
Geirdai.
Þingið var fjölsótt enda
er nú mikil gróska í starfsemi UNÞ. Fé-
lagar í sambandinu eru nú tæplega 500.
Brynjar Halldórsson formaður UNÞ flutti
skýrslu stjórnar og í henni kom m.a. fram
að íþróttalega séð er sambandið mjög að
styrkjast, enda hefur verið lögð sérstök
rækt við kennslu og þjálfun unglinga hjá
UNÞ, en það var íþróttakeppni milli Vest-
inn af þvi starfi, en hann sést m.a. á því
að tugir héraðsmeta voru sett á síðasta
starfsári sambandsins.
Þá kom fram í skýrslunni skemmtileg-
ur og dálítið sérstæður þáttur í starfsemi
UNÞ, en það var íþróttakeppni milli Vest-
mannaeyinga og Norður-Þingeyinga,
sein fór fram í Ásbyrgi 16. júní s.l. Tókst
keppnin hið bezta og er nú áformað að
UNÞ endurgjaldi Vestmannaeyingum
heimsóknina í sumar. íþróttafólk UNÞ
tók þátt í Norðurlandsmeistaramótinu á
Blönduósi og fleiri keppnum utan hér-
aðs og stóð sig jafnan með prýði. Þá
var háð knattspyrnukeppni innan héraðs
og tóku þátt í henni sex lið.
UNÞ tók myndarlegan þátt í land-
græðslu ungmennafélaganna á síðasta
sumri, og gætu mörg stærri héraðssam-
bönd tekið sér UNÞ til fyrirmyndar í
þeim efnum.
Héraðsmót UNÞ var haldið í Ásbyrgi
18. og 19. júlí og var vel til þess vandað,
þannig að það var jafnframt hin mynd-
arlegasta sumarhátíð með fjölda vand-
aðra skemmtiatriða auk íþróttakeppninn-
ar.
Alls störfuðu 4 íþróttaþjálfarar á veg-
um UNÞ á síðasta ári.
í stjórn UNÞ fyrir næsta starfsár voru
kjörnir.
Formaður: Brynjar Halldórsson
Gjaldkeri: Árni Sigurðsson.
Ritari: Guðmundur Þórarinsson.
Varaform.: Stefán Eggertsson.
Framkvæmdastjóri UNÞ í sumar verð-
ur Níels Á. Lund og mun hann jafnframt
annast íþróttakennslu.
Ársþing Héraðssambands
Suður-Þingeyinga var hald-
ið á Húsavík 4.—5. júní 1971.
Þingið sóttu 36 fulltrúar frá
10 félögum. Félagar HSÞ
eru nú 1025 í 12 félögum.
Á vegum HSÞ störfuðu 7 íþróttakenn-
arar í lengri eða skemmri tíma. Hald-
ið var sumarbúðanámskeið fyrir ungl-
inga á aldrinu 12—15 ára, en þessi
námskeið eru annars meira sótt af
26
SKINFAXI