Skinfaxi - 01.06.1971, Blaðsíða 41
SKÁKÞING UMFÍ 1971
Fjögur lið keppa til úrslita á landsmótinu
Forkeppni á þriðja Skákþingi UMFÍ er
nú lokið. Til leiks voru skráðar sveitir
frá 13 sambandsaðilum, og var þeim skipt
í fjóra riðla í forkeppninni.
Leikar fóru sem hér segir í hinum ein-
stöku riðlum;
1. riðil];
Ungmennasamband Kjalamesþings
7 vinninga
Ungmennasamband Borgarfjarðar
31/2 vinning
Ungmennasambandið Ulfljótur,
lý2 vinning
í þessum riðli átti sveit HSH einnig að
keppa, en hún kom ekki til leiks.
2. riðill:
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
6V2 vinning
Héraðssambandið Skarphéðinn
3y2 vinning
Ungmennasamband V.-Húnavatnss.
2 vinninga
3. riðill:
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
6 vinninga
Ungmennafélag Bolungarvíkur
31/2 vinning
Ungmennasamband N.-Breiðfirðinga
2V2 vinning
4. riðill:
Ungmennasamband Eyjafjarðar
2y2 vinning
Ungmennasamband Skagafjarðar
iy2 vinning
í þessum riðli átti sveit Héraðssam-
bands Suður-Þingeyinga einnig að keppa,
en hún kom ekki til leiks.
Nú verða í fyrsta sinn fjórar sveitir í
úrslitakeppni skákþingsins en hafa áður
verið þrjár. Kcppl er um hinn veglega
verðlaunagrip Skinfaxastyttuna, sem
UMFÍ gaf til keppni í tilefni 60 ára af-
mælis málgagns síns.
Fyrst var ke|)pt urn Skinfaxastyttuna
1969, og sigraði þá sveit HSK, en í fyrra
bar sveit UMSK sigur úr býtum. Hin
aukna þátttaka í skákkeppninni sýnir, að
sveitakeppni í skák er vinsælt viðfangs-
efni ungmennafélaga og vel til þess fallin
að lífga félagslífið.
Á síðasta landsmóti efndi UMFÍ ti]
sveitakeppni í skák, og þótti hún gefast
svo vel, að ákveðið var að efna til fyrsta
skákjrings UMFÍ árið eftir.
Skinfaxastyttan
er stór,
útskorinn
riddari, gerður
af Jóhanni
Björnssyni.
SKINFAXI
41