Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1971, Side 7

Skinfaxi - 01.06.1971, Side 7
Á þessum uppdrætti sést skipulag mannvlrkja á iandsmótssvæðinu á Sauðárkróki. glímu verður nú í fyrsta sinn keppt í tveimur þyngdarflokkum, — annars veg- ar glímumenn yfir 84 kg. og hins vegar menn 84 kg. og léttari. Hver sambands- aðili má senda tvo keppendur í hvom þyngdarflokk. Þá verður keppt í knattspyrnu, körfu- knattleik karla og handknattleik kvenna, og koma þrjú lið til úrslitakeppninnar í hverri grein, eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu. í frjálsum íþróttum, starfsíþróttum og sundi gilda þær reglur, að hver þátttak- andi má ekki keppa í fleiri en þremur greinum auk boðhlaups eða boðsunds. Hver sambandsaðili hefur rétt til að senda þrjá menn í hverja grein nema í glímu, eins og áður segir, og í dráttar- vélaakstur tvo keppendur. Sú almenna regla gildir um þátttöku- rétt á landsmótinu, að þeir einir hafa rétt til keppni, sem hafa búsetu á viðkomandi félagssvæði á almanaksárinu eða hafa ekki keppt fyrir félag utan UMFÍ að minnsta kosti árið fyrir landsmót. Stigaútreikningur. í frjálsum íþróttum, starfsíþróttum, sundi og glímu hljóta 6 fyrstu menn stig sem hér segir: 1. 6 stig, 2. 5 st., 3. 4 st., 4. 3 st., 5. 4 st. og 6. 1 st. Sama stigagjöf gildir í boðhlaupum og boðsundum. Verði einstaklingar eða sveitir jafnar, skiptast stig að jöfnu milli þeirra. SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.