Skinfaxi - 01.06.1971, Síða 10
Guömunda
Guðmundsdóttir,
HSK.
inn kostur á beztu aðstöðu sem völ er á
til að njóta þess sem fram fer. Sund-
fólkið á að sýna, hvað í því býr, og
vinna þau afrek sem það keppir að, því
nú fær það fullkomnustu aðstöðu, sem
til er. Það er líka trú mín, að öll núver-
andi landsmótsmet heyri sögunni til eftir
11. júlí í sumar.
Við skulum nú aðeins huga að sund-
íþróttinni, en öflugustu félögin og sam-
böndin í sundinu eru HSK, UMFK og
UMSS. Þessir aðilar hafa verið, og í þeirri
röð sem ég nefndi þau, í sérflokki á und-
anförnum landsmótum, en fast á eftir
hafa svo fylgt HSÞ, HSH og HSS og á
síðasta landsmóti Umf. Skipaskagi, sem
nú ógnar veldi hinna grónu félaga í þess-
ari grein.
Umf Skipaskagi mun eflaust skipa sér
í eitt af þrem efstu sætum í stigakeppni
sundmótsins með hinn frábæra einstakl-
ing Guðjón Guðmundsson. Hann er nú í
toppþjálfun og er í algerum sérflokki í
bringusundinu með árangur í greininni á
Evrópumælikvarða. Landsmótsmet hans
í 200 m. bringusundi 2:47,3 mín., sett á
Eiðum 1968, má svo sannarlega biðja
fyrir sér á Sauðárkróki 1971. Ef hið ágæta
sundfólk frá Akranesi fylkir liði með
Guðjóni má búast við óvæntum úrslitum,
og þá ekki hvað sízt í kvennagreinunum.
UMFK er til alls víst á þessu sundmóti,
það stendur á gömlum merg. Allir muna
eftir þeim nöfnum Ingu Helen og Ingu
Árnadóttur og kempunum Pétri Hannes-
syni, Herði Finnssyni, Guðmundi Sig-
urðssyni, að ógleymdum Davíð Valgarðs-
syni, fjórföldum meistara frá Laugarvatni
1965. Allt þetta fólk, ásamt mörgum öðr-
um, bar hróður Keflavíkur í sundi um
land allt og á landsmótum um áraraðir.
Nú er kominn upp hópur yngri og efni-
legra sundmanna og kvenna og verður
spennandi að fylgjast með árangri þess
á komandi sundmóti.
HSK ver nú í þriðja sinn titil sinn sem
stighæsta sambandið á sundmóti lands-
mótsins. Enginn vafi er á, að það hefur
fullan hug á að halda þeim titli og selja
sig dýrt hverjum þeim, sem tekst að ná
honum.
HSK hefur mjög mörgum jafngóðum
einstaklingum á að skipa, sem raða munu
sér á tvö til þrjú af sex efstu sætunum í
þeim sundgreinum, sem keppt er í. Hæst
ber þar Guðmundu Guðmundsdóttur,
Birgir
Guðjónsson,
UMSS.
..
-
10
SKINFAXI