Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1971, Síða 23

Skinfaxi - 01.06.1971, Síða 23
3. Hoppað sundur og saman. Hoppið varlega — dúið lítillega i hnjám en hafið hrygginn bein- an. Gert í lotum með 10—20 endurtekningum i hverri. 4. Smáhopp með fót- skiptum fram og aftur. Hoppað varlega með ör- litlu dúi í hnjám en taeinum hrygg. Gert i lotum með 10—20 end- urtekningum í hverri. 5. Smáhopp i lotum á öðrum fæti. Hoppað varlega i góðu jafnvægi með vel beinan hrygg. 10—20 endurtekningar í hverri lotu. 6. Jafnfætis smáhopp. Réttið vel úr ökklunum i upphopp- inu. Örlítið gefið eftir í hnjám, þegar komið er niður. Lotur með 10—20 endurtekn- ingum. Æfingarnar 1—6 verka aðallega á rétti- vöðva ökla-, hné- og mjaðmaliða. Æfingarnar 7, 8 og 9 verka aðallega á magavöðvana og beygjuvöðva mjaðmar- liðs. 7. Setið á gólfi meðfæturfasta milli tveggja neðstu riml- anna. Setzt upp og lagzt niður. Byrjað með því að höfuðið og olnbog- arnir pressast áfram. ATH. Æfingin verð- ur eftir þvi erfiðari, sem hnén eru beygð- ari eða fæturnir eru festir hærra upp. 8. Sama upp- hafsstaða og í no. 7. Hring- hreyfingar í lotum á vinstri og hægri hlið. 9. Setið á bekk meðfæturfasta milli rimla á hæð við bekk- inn eða örlítið neðar. Haldið á þyngd við brjóst. Lagzt niður með bolvindu á aðra hliðina. Setzt upp og endurtekið á hina hliðina. Bezt er að gera æfinguna með h. og v. bolvindu til skiptis. 10. Staðið með fætur í sundur. Hliðbeygjur með litlu dúi i hnjám. Byrjað með léttum þunga, sand- sekk eða einstakri skífu framan á brjósti. Verkar einnig vel á magavöðvana. SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.