Skinfaxi - 01.06.1971, Page 33
úrslitum á landsmótinu
lxb umsb
Undir merki Ungmennasambands Borgarfjaröar mun hiö sigursæla lið Umf. Skallagríms
í Borgarnesi taka þátt í körfuknattleikskeppni 14. landsmótsins. S.l. vor ávann þetta lið
sér rétt til þess að keppa í 1. deild íslandsmótsins næsta keppnistímabil. Úrslitasigur Borg-
nesinganna þýddi það aö Njarðvíkingar féllu niður í Z. deild eftir geysispennandi og ágætan
leik þessara aðila. Nú mætast þessir sögufrægu andstæðingar aftur á Sauðárkróki og gera
upp sakirnar að nýju.
Á myndinni eru frá vinstri, fremri röð: Hörður Þórðarson, Gunnar Gunnarsson, Berg-
sveinn Símonarscn, Sigurður Daníelsson og Steinar Ragnarsson. Aftari röð frá vinstri:
Tryggvi Jóhannsscn, Pétur Jónsson, Gísli Jóhannsson, Bragi Jónsson og Andrés Þórarinsson.
(Ljósm. Sveinn Þormóðsson.)
SKINFAXI
33