Skinfaxi - 01.05.1994, Qupperneq 22
Umf. Fram á Skagaströnd:
Nýjungar í starfi
Göngudagur fjölskyldunnar 1994:
Nú eiga allir að vera með
Steinunn Steinþórsdóttir er formað-
ur Ungmennafélagsins Fram á Skaga-
strönd.
Hefur hún sem formaður farið ó-
troðnar slóðir á ýmsum sviðum. Má til
dæmis nefna að félagið hefur boðið
upp á námskeið í ungbarnaleikfimi.
Kennari er Carl Erik Jakobsen. Var
námskeiðið vel sótt og tókst með mikl-
um ágætum.
Þá stóð félagið fyrir söfnun í
dósagám sem mun í framtíðinni skila
því einhverjum tekjum.
Steinunn hefur einnig verið óspör að
ýta á eftir íþróttahússbyggingu við
misjafna hrifningu hreppsnefndar-
manna.
(Heimild:
Fréttabréf UMF. Fram)
,,Calle“ með ungbörn í leikfimi.
1994, sem nú stendur yfir, en upplagt
er að tengja göngudag fjölskyldunnar
við það.
Stjórnir ungmennafélaga og fram-
kvæmdastjórar eru hvattir til að skipu-
leggja göngudag og gera hann þannig
að allur almenningur, sem ann útivist,
eigi kost á að vera með. Ef skátar eru
starfandi á viðkomandi félagssvæði er
upplagt að leita samvinnu við þá.
Einnig væri æskilegt að finna trimm-
hópa á staðnum, sem gætu tekið þátt,
svo og aðra hópa eins og hjónaklúbba,
félag eldri borgara eða starfshópa
vinnustaða, svo eitthvað sé nefnt. Svo
er um að gera að fá sögumann í hópinn,
leiktæki fyrir börn, eins og bolta, og
best væri að enda með einhverri
skemmtilegri uppákomu eins og sam-
eiginlegri grillveislu.
Þeir sem eru að undirbúa göngudag
ættu endilega að hafa samband við
Þjónustumiðstöð UMFÍ, síma 91-
682929, ef þá vanhagar um einhverjar
upplýsingar, auglýsingaskilti eða viður-
kenningar. Og svo er bara að drífa sig
út undir bert loft og verða sér úti um
holla hreyfingu í góðum félagsskap.
Árið í ár er hið fimmtánda í röðinni
sem UMFÍ-félögin efna til göngudags
fjölskyldunnar. Að þessu sinni var hann
ákveðinn 26. júní.
Vert er að benda á að það er þó eng-
inn bundinn við þessa dagsetningu. Fé-
lögin eða einstakir hópar geta sem best
efnt til síns göngudags síðar í sumar
eftir því sem hentar hverjum og einum.
Hægt er að fara í göngutúra, skokk eða
til dæmis berjamó. Aðalatriðið er að
njóta útivistar og hollrar hreyfingar og
hvetur UMFÍ sem flesta til þátttöku.
Þá má minna á Lýðveldishlaupið
Allir œllu að taka þátt í göngudegi fjölskyldunnar.
22
Skinfaxi