Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1994, Síða 24

Skinfaxi - 01.05.1994, Síða 24
Nýstofnað ungmennafélag, Umf. Glói, á Siglufirði: Það byrjaði allt með fáeinum krökk- um í körfubolta Aliugasamirfélagar á stofufundi „Upphafið á þessu öllu var það, að fyrir 7-8 mánuðum var maður að nafni Sigurður G. Þorleifsson beðinn um að þjálfa í körfubolta á Siglufirði. Hann byrjaði með nokkra krakka, og í lok mars voru þeir orðnir 50-60 talsins. Þegar svo var komið ákváðum við að stofna félag og velja ungmennafélags- formið utan um það,“ sagði Erlingur Arnarson á Siglufirði í stuttu spjalli við Skinfaxa. Og það er óhætt að segja að boltinn hafi hlaðið utan á sig á Siglufirði, því ekki voru liðnar nema fáeinar vikur frá því að nokkrir krakkar mættu í körfu- bolta og þar til búið var að stofna Ung- mennafélagið Glóa, sem var stofnað þann 17. apríl sl. Formaður er téður Sigurður Gestur Þorleifsson, en aðrir í stjórn eru Ásta Katrín Helgadóttir, rit- ari, Erlingur Arnarson gjaldkeri, Þuríð- ur Helga Þorsteinsdóttir og Þórarinn Hannesson. Umf. Glói starfar nú í tveim deild- um. Þórarinn Hannesson er formaður frjálsíþróttadeildar og Erlingur Arnar- son er formaður körfuknattleiksdeildar. „Á stofnfundinn hjá okkur mættu for- maður UMFÍ, Þórir Jónsson, svo og Sæmundur Runólfsson framkvæmda- stjóri og Hörður Óskarsson starfsmað- ur UMFÍ. Þarna voru mættir 50 stofn- félagar, en nú, fáeinum vikum síðar, eru félagarnir orðnir 160 talsins, sem mun vera 9 prósent af bæjarbúum,“ sagði Erlingur. Á aðalfundinum var samþykkt að efna til samkeppni um nafn á félaginu. Alls bárust 130 tillögur og voru yngri félagsmenn ólatir við að senda inn hugmyndir. Síðan ákvað stjórn félags- ins að velja félaginu nafnið Glói. Heið- urinn af þeirri nafngift átti ungur Sigl- firðingur, Benedikt Stefánsson. Hann hlaut vegleg verðlaun og svo auðvitað heiðurinn af því að eiga hugmyndina að nafninu. Aðspurður um hvers vegna ung- mennafélagsformið hefði orðið fyrir valinu, þegar félaginu var ýtt úr vör sagði Erlingur að það hefði verið talið henta best. „Það er miklu opnara, það stílar ekki bara inn á afreksfólk, heldur rúm- ast allir innan þess. Það er engin laun- ung að ungmennafélagsformið hefur náð góðri fótfestu úti á landsbyggðinni og okkur þótti það henta okkur best.“ Aðspurður um hvað væri fram und- an hjá Umf. Glóa sagði Erlingur að fé- lagið myndi að sjálfsögðu sjá um fram- kvæmd Lýðveldishlaups UMFÍ í bæn- um og væri geysimikill áhugi fyrir því. Varðandi körfuboltadeildina væri markmiðið að senda nokkra flokka á íslandsmótið næsta haust. Til undir- búnings hefðu verið sendir þrír ein- staklingar á þjálfaranámskeið hjá KKI. I sumar yrðu settar upp körfur í íþrótta- húsið á staðnum og þá færi væntanlega fram vígsluleikur. Loks væri stefnt að því að setja upp æfingabúðir í körfu í ágúst. „Þá hefur Siglufjarðarbær veitt frjálsíþróttadeild Umf. Glóa 350 þús- und króna styrk til þess að kaupa tæki til að iðka frjálsíþróttir. Það er mikill hugur í okkur og deildin stefnir á að senda lið á unglingalandsmót UMFI á næsta ári. Við viljum biðja fyrir þakkir til starfsmanna UMFÍ, ekki síst Harðar Óskarssonar, fyrir hjálpsemina við stofnun Umf. Glóa,” sagði Erlingur að lokum. 24 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.