Skinfaxi - 01.05.1994, Síða 31
Lífsstíll ‘94:
Er íþróttahreyfingin
á villigötum?
„Markmiðið með þessari ráðstefnu
var að opna umræðuna um samskipti
fjölskyldunnar og íþróttahreyfingarinn-
ar, svo og tengslin milli íþróttahreyf-
ingarinnar og skólans,“ sagði Kolviður
Helgason formaður knattspyrnudeildar
HK, en í vor stóð stuðningshópur
knattspyrnudeildarinnar fyrir myndar-
legri ráðstefnu undir heitinu Lífsstíll
‘94. Ráðstefnan þótti takast rnjög vel,
en aðsókn hefði mátt vera meiri.
„Eins og allir vita eru það aðeins ör-
fáir aðilar sem standa venjulega í eld-
línunni við það að ná inn fjármagni til
að reka íþróttahreyfinguna, “ sagði
Kolviður. „Spurningin er: Til hvers
erum við að þessu? Eigum við að setj-
ast fyrir framan myndbandstækið
heima eins og hinir og láta þetta eiga
sig, eða er þetta einhvers virði? Við
vildurn fá álit nokkurra lykilmanna,
svo sem fulltrúa Unglingaheimilis rík-
Að hálfu UMFÍ flutti Ólína Sveinsdóttir
stjórnarmaður ávarp á ráðstefnunni. Hér
sést hún á tali við Reyni Karlsson, íþrótta-
fulltrúa ríkisins.
isins, lögreglunnar, skólans, foreldra
og bama svo og fleiri.
Við vildurn einnig velta því fyrir
okkur hvort íþrótlahreyfingin sé hug-
anlega á villigötum, hvort of mikil á-
hersla sé lögð á keppnisíþróttir, afrek
og bikara. Það var álit flestra að við
værum komin aðeins of langt í þeim
efnum. En það var eindregin áskorun
til okkar að halda áfram og vera ineð
fleiri ráðstefnur af þessu tagi, því þetta
sé aðeins byrjunin á þeirri umræðu
sem koma skuli.“
Bein fylgni
Kolviður sagði margt merkilegt hafa
komið fram á ráðstefnunni, meðal ann-
ars sú fullyrðing frá skólstjórum að
bein fylgni sé með íþróttaiðkun og ár-
angri í námi. Fulltrúi lögreglu hefði
haft sömu sögu að segja, að þeir sem
væru illa komnir vegna afbrota og
vímuefnaneyslu leggðu ekki stund á
íþróttir. „Öflugasta vopnið gegn vímu-
efnum og til að byggja upp unglinga
sem komnir eru inn á Unglingaheimili
ríkisins er að koma viðkomandi í
íþróttir,“ sagði Kolviður. „Hins vegar
býður íþróttahreyfingin ekki upp á
neitt í slíkum tilvikum. Þeir sem um
ræðir verða að kaupa sig inn á líkams-
ræktarstöð. Þarna erum við aftur kom-
in að spurninginni: Til hvers erum við
að þessu? Erunt við að þessu til að búa
til eintóma afreksmenn í íþróttum?
Erum við að þessu til þess að byggja
upp hinn almenna borgara?
Þarna þyrfti að tengja saman íþrótta-
kennslu í skólum, líkamsræktarstöðv-
arnar og íþróttahreyfinguna í heild,
þannig að þessir aðilar ynnu markvisst
saman.
Menn eru alltaf tilbúnir til að stofna
ný samtök, t.d. gegn vímuefnum, svo
og ný félög. Aður en við vitum af eru
risin upp svo og svo mörg félög sem
öll þykjast vera að vinna að sama efn-
inu, en talast ekki við. Fyrsta árið fær
viðkomandi fjánnagn frá hinu opin-
Á ráðstefnunni var varpað fram þeirri spurningu hvort of mikil áhersla sé lögð á
keppnisíþróttir.
Skinfaxi
31