Skinfaxi - 01.05.1994, Síða 36
Fræ á fjöll
- ruslið heim
- öflugt starf Ferðaklúbbsins 4 x 4 í þágu landverndar og landgræðslu
Þegar rætt er um ferðalög á fjór-
hjóladrifnum bílum á hálendinu kynni
einhver að sjá fyrir sér stórkallalega
jeppa, öslandi yfir viðkvæman gróður
og friðuð lönd.
En þetta er, sem betur fer, liðin tíð.
Nú komast menn einfaldlega ekki upp
með slíka hluti. Um það sér meðal
annarra Ferðaklúbburinn 4x4, sem
hefur á undanförnum árum unnið mjög
merkilegt starf í verndun og upp-
græðslu lands. Sigurgeir Þórarinsson
fráfarandi formaður umhverfisnefndar
klúbbsins segir hér frá starfi hans á því
sviði.
„A síðasta ári voru liðin rétt 10 ár
frá því að klúbburinn hóf starfsemi
sína. Strax í upphafi varð náttúruvernd
mjög ríkur þáttur í starfi hans.
Landgræðsluferðir og annað ámóta
starf hófst svo fyrir þrem árum. Þá var
náttúruvernd orðinn það stór liður, að
ákveðið var að stofna umhverfisnefnd,
sem sæi um þessi mál. Þá höfðum við
farið í tvær svokallaðar stikuferðir með
félögum úr Sjálfboðaliðasamtökum um
náttúruvernd. í slíkum ferðum leggjum
við til fararskjótana. Við stikum þær
leiðir sem á að aka, en lokum hinum
sem ekki á að fara eftir með því að
raka yfír þær og láta þær hverfa.
Við höfum farið fjórar slíkar ferðir
og í þeim hafa tekið þátt allt að 70-80
manns. Fyrstu tvær ferðirnar voru fam-
ar í kringum Hrafntinnusker og Land-
mannalaugar. Sú þriðja var farin inn í
Lakagíga og í þeirri fjórðu fórum við á
Hlöðuvallasvæðið og stikuðum leiðina
frá Miðdal og inn á línuveg.“
Breytt viðhorf
_ Hafið þið séð mörg merki um
akstur utan merktra leiða?
„Já, en það hefur minnkað geysi-
Með hálmbagga á leiðinni að Sandvatni.
mikið að menn séu að aka utan þeirra.
Flest þau sár sem við sjáum eru orðin
mjög gömul. Viðhorfin hafa breyst
mjög mikið á síðustu 10-15 árum.
Aður fyrr þótti gaman að segja frá því
að hafa farið nýja slóð eða upp á nýtt
fell. í dag myndi enginn þora að koma
með slíka sögu inn í hópinn, því hann
yrði umsvifalaust tekinn í gegn.
í þau tíu ár sem klúbburinn hefur
starfað hefur hann haldið uppi stans-
lausum áróðri gegn utanvegaakstri.
Við vitum ekki til þess að klúbbfélagi
hafi verið staðinn að því að aka utan
slóða og valda skemmdum síðustu
fjögur árin. Á sama tímabili höfum við
frétt af þrem tilvikum þar sem utanfé-
lagsmaður hefur valdið skemmdum á
gróðri.
Það gerðist fyrir rúmu ári, að aðili
varð valdur að skemmdum inni í Land-
mannalaugum. Það var kært til Nátt-
úruverndarráðs, sem beindi málinu til
okkar til þess að taka á því. Við rædd-
um svo við viðkomandi, buðum hon-
um að koma í klúbbinn þar sem hann
gæli kynnst og farið að þeim reglum
sem ber að fara eftir við ferðalög um
landið. Þessi maður fór svo ásamt
nokkrum félögum og lagfærði
skemmdirnar eftir sig. Hann er virtur
félagi í dag. En málið er að utanfélags-
menn, sem fara um með spjöllunt,
skemma alveg eins mikið fyrir klúbbn-
um og væru það klúbbfélagar. “
_ Hvers vegna hefur 4x4 lagt svo
mikla áherslu á náttúruvernd sem raun
ber vitni?
„Við erum ferðahópur, sem höfum
valið að ferðast um á bílum og njóta
náttúrufegurðar með þeim hætti. Þar af
leiðandi er okkur mjög annt um landið
36
Skinfaxi