Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1999, Qupperneq 16

Skinfaxi - 01.12.1999, Qupperneq 16
hugsa um þetta sem einhverja endastöð. Ég held að þetta sé að breytast þannig að menn komi inn í ákveðinn tíma með ákveðnar skoðanir og vinni að þeim ef menn fara síðan að þreytast mikið á þessu er tími til kominn að snúa sér að einhverju öðru.“ - En þessi stöðuga neikvæða umfjöllun sem alltaf virðist finna leið sína í fjölmiðla landsins? „Ég er nú þannig gerður að ég er mikill kappsmaður og finnst líka ágætt þegar á móti blæs. Það er líka gott að fá vindinn í bakið öðru hvoru en það fer kannski minna fyrir því í pólitíkinni. Ef ég hef sannfæringu fyrir ákveðnum málum og vil berjast fyrir þeim þá geri ég það. Ég held að þeir stjórn- málamenn sem alltaf fara undan þegar á móti blæs, breyta afstöðu sinni miðað við hvernig hver og einn talar við þá eru stjórn- málamenn sem aldrei ná neinu í gegn.“ - Nú ert þú búinn að sitja sem ráðherra í tæp fimm ár og eflaust mikið gengið á, en hvaða málefni eru eftirminnilegust? „Samningarnir sem tókust um álverið í Straumsvík voru mjög mikilvægir og ollu straumhvörfum í þeim efnum. Þetta var eitthvað sem allir forverar mínir höfðu verið að reyna að gera en tókst aldrei. Svo tókst líka að gera samninga um byggingu álvers á Grundatanga og það var annað sem menn höfðu verið að gera mjög lengi en ekki tekist. Ég stend svo núna í þessum slag fyrir austan sem er Fljótsdalsvirkjun og bygging álvers í Reyðarfirði sem er stærsta byggðarmál sem nokkru sinni hefur verið ráðist í. Ef ég sný mér þá að fjármagns- markaðnum þá hefur hann gjörbreyst. í 15 ár töluðu menn um aö sameina fjárfestinga- og lánaþjónustu atvinnulífsins en það tókst aldrei. Mér tókst það í góðri Ef ég hef sannfæringu fyrir ákveðnum málum og vil berjast fyrir þeim þá geri ég það sátt í ríkisstjórnni og sameinaði Iðn- lánasjóð, Fiskveiðisjóð, Iðnþróunarsjóð og Útvegslánasjóð í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóð. Stjórnar- andstaðan sagði að þetta væri tóm vitleysa og engir peningar í þessu. Núna þegar Fjárfestingarbankinn er seldur er hann 20 milljarða króna virði og skilar ríkissjóði og þjóðinni þá um leið 15 milljarða króna - peningum sem menn bjuggust alls ekki við. Menn höfðu reynt í 10 ár að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög en það hafði aldrei tekist. Mér tókst það árið 1997 með góðri aðstoð í ríkisstjórninni og svona gæti ég haldið áfrarn." - Er eitthvað sem þú hefur verið ósáttur við? „Það eru auðvitað málefni sem ég hefði viljað gera aðeins öðruvísi en ef ég lýt á heildarmyndina er ég mjög sáttur með þann tíma sem ég hef setið í ráðherrastóli." - Að lokum. Er einhver tími fyrir líkamsrækt og önnur áhugamál? „Það er nú bara svo einfalt að maður verður að gefa sér tíma. Ég er með svakalega mörg áhugamál og sinni þeim ágætlega. Ég er svona fjórum sinnum í viku í einhverskonar líkamsrækt og var til dæmis á tímabili í fótbolta með alþingismönnum en ég hef dregið mig í hlé þar sem mér finnst slysahættan of mikil í boltanum. Ég er í tveimur gönguhópum, hestamennsku, er mikill veiðimaður. Ég á jörð austur á Snæfellsnesi ásamt öðrum og þar er æðarrækt sem ég er mikill áhugamaður um. Það er því óhætt að segja að ég hafi nóg að gera og mér leiðist sjaldan.“ 1fi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.