Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1999, Síða 21

Skinfaxi - 01.12.1999, Síða 21
- Finnst þér hreyfingin hafa breyst mikið frá því þú varst einn af stofnendum Ungmennafélagsins Húna? „Auðvitað hefur hreyfingin breyst mikið og verið í takt við tímann. í þéttbýlinu eru íþróttirnar orðnar miklu stærri þáttur í starfinu heldur en var á upphafsárunum. Hjá félögunum úti á landi er fjölbreyttnin meiri og víða sjá félögin um menningarstarfið að mestu. Mér finnst ungmennafélagsandinn alltaf vera sá sami og hann breytist aldrei.” - Eftir 48 ára starf hljóta að vera margar eftirminnilegar stundir, er eitthvað sérstakt sem stendur upp úr hjá þér? „Það er mjög erfitt að nefna eitthvað eitt en samt held ég nú að Landsmótin séu eftirminnilegust þegar ég lít til baka. Ég hef verið á öllum mótum frá árinu 1961, og þau hafa öll verið afskaplega eftirminnileg þó að þau hafi verið mjög ólík. Það hafa verið sérstök svipbrigði á hverju móti en alltaf hafa þetta verið alveg yndislegar stundir.” - Hver voru stærstu málefnin sem hreyfingin var að vinna að á því tímabili sem þú varst formaður? „Við endurbættum í tvígang aðstöðu þjónustumiðstöðvarinnar. Við efldum mjög samskipti við félaga okkar um allt land. Við fórum út í þrjú umhverfisverkefni á landsvísu, sem heppnuðust einstaklega vel. En þó verður mér sennilega eftirminnilegast verkefnið „Eflum íslenskt” þegar við hjóluðum 3400 kílómetra um landið og komum við á næstum öllum þéttbýlisstöðum. Þetta var hvattning til fólks að kaupa innlenda framleiðslu fremur en innflutta. Það var mikil þátttaka og stemmning og vel merkjanlegur árangur.” - Ef við snúum okkur að málgagni hreyfingarinnar, Skinfaxa, sem í ár heldur upp á 90 ára afmæli sitt. Þú hefur fylgst með útgáfunni í gegnum tíðina og séð margar breytingar? „Já ég hef gluggað talsvert í gamla Skinfaxa og reyndar vantar mig nú bara eitt blað til að eiga öll Skinfaxablöðin frá upphafi. Það er óhætt að segja að blaðið hafi breyst mikið á þessum tíma. Blaðið hafði mikið þjóðfélagslegt gildi á sínum tíma og var mjög pólitískt. í dag er tilgangur þess allt annar en ég held að það sé hægt að segja enn í dag að blaðið sé gott og þjóni sínum tilgangi sem upplýsinga- og fræðslurit. Það er mjög erfitt að bera saman blöðin sem komu út þegar við vorum í Þjóðfélagsbaráttunni og svo blöðin sem eru að koma út núna - þetta eru allt aðrir tímar og ekki hægt að líkja þeim saman”. - Sérðu fyrir þér að tímarit eins og Skinfaxi eigi eftir að koma út í önnur 90 ár? „Já, ég er alveg sannfærður um það. Ég held að ungmennafélagshreyfingin eigi eftir að vera öflug og ég held að hún eigi eftir að styrkjast frekar en hitt og Skinfaxi sr og verður alltaf hluti af henni. Þrátt fyrir miklar breytingar á tölvuöld verður ætíð'þörf fyrir félög sem sinna fjölbreyttu menningarstarfi. Hvort sem það eru íþróttir, umhverfismál eða bara að skapa aðstöðu fyrir fólk á öllum aldri til að starfa saman að heilbrigðu tómstundastarfi. Það eykur líffyllingu tólks og dregur úr þeirri hættu sem á vegi ungs fólks er. Það er gæfa hvers manns að kunna að !eika sér. Ég treysti engum betur en ungmennafélagshreyfingunni til að vinna að því.” ■ En svona að lokum, veistu hvað orðið Skinfaxi þýðir? -Hefur það ekki eitthvað með hest og sól að gera”. (Orðabók: ‘hestur sólarinnar’) ÍSIAND ÍSIANO Jólsveinafrímerki ISIANO (SIANO Á þessu ári eru gefin út þrettán mismunandi jótafrímerki. Á þeim eru ístensku jótasveinarnir sýndir eins og við könnumst við þá. fullir af lævísi og hrekkjum. Á frímerkjunum skrýðast þeir þjóðlegum búningum í samræmi við niðurstöður í hugmyndasamkeppni Þjóðminjasafnsins um útlit þeirra og klæðnað. Frímerkjasatan Vesturgötu 10a, 101 Reykjavík Sími 580 1050 Fax 580 1059 www.postur.is/postphit íslendingar burfa um blóðgjafir áárií liörfnumst Mnnar hjálpar! BLÓÐBANK3NN Móttaka blóðgjafa er opin: Mánud.: 8:00-19:00 Þriðjud. og miðvikud.: 8:00-15:00 Fimmtud.: 8:00-19:00 Föstud.: 8:00-12:00

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.