Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1999, Side 30

Skinfaxi - 01.12.1999, Side 30
Hver sem ann íþróttum af heilum hug, er líka reglumaður. Það lærist fljótt, að íþróttir og nautnalyf eiga ekki samleið. Íþróttalíf æskumannsins er því eitt af sterkustu vopnunum í baráttunni gegn höfuðóvinum æskulýðsins: áfengi og tóbaki. Nútímaæskan. Hvað heyrum við oftast, þegar rætt er um nútíma æsku? Mest ber þar á aðfinnslum og ádeilum. Hún er kölluð laus í sér og léttúðug. Hún er talin kvikul, táplítil og drykkfelld. Margir telja hana óþjóðlega og illa að sér í þjóðlegum fræðum. Sumir telja, að Ijóðsmekkur og Ijóðaþekking sé að fjara út hjá nútima æskulýð. Eigum við, sem fullorðin erum, að trúa þessum ásökunum? - Það er erfitt, að meta samtíð sína, en líkar ádeilur hafa heyrzt um ungmenni og æskulýð á öllum öldum, og þó hika jafnvel svartsýnustu menn við að segja, að mannkynið sé í afturför. Niðurlagsorð. Eg vil svo enda orð mín eins og eg byrjaði, að hvetja æskuna til íþrótta. Þær eru hollasta viðfangsefni frístundanna og sterkasta vörnin gegn tælandi freistingum nautnalyfja og lauslætis. Þær efla reglusemi og drenglyndi, sem eru höfuðkostir hvers vaxandi mann. Og þær geta fætt af sér ódauðleg þrekverki sem geymast um aldaraðir á spjöldum sögunnar. Stefán Jónsson Erindi flutt á sumarmóti 1938 Skinfaxi fyrir 50 árum Bækur geta verið skaðlegar fyrir unglinga íslendingar eru bókaþjóð. Stundum hafa þeir verið nefndir bókalaus bókaþjóð, en nú er meira talað um bókaflóð. Það er kunnugt af sögum, enda muna elztu menn þá tíma, að lítið var um bækur og ólíkt því, sem nú er... ... Nú er svo, að bækur eru mjög misjafnar að gæðum; sumar góðar, aðrar gagnslausar, en margar vondar, og geta verið skaðlegar fyrir unglinga. Það hefur til dæmis verið sagt frá því í fréttum, að piltur einn, sem tekinn var fastur fyrir þjófnað, skýrði frá því, að hann hefði farið að iðka slíkt vegna þess, hve hrifinn hann varð af sögum um slynga þjófa, sem alltaf sluppu undan lögreglunni.Þannig getur lestur slæmra bóka leitt æskuna á glapstigu. Ungmennafélögin hafa hér miklu hlutverki að gegna; og góða aðstöðu til að hafa áhrif á lesefni fólksins, með því að hafa aðallega í bókasöfnum sínum þær bækur, sem eru hollar til lestrar og hafa göfgandi áhrif á ómótaða unglinga. Það er þannig með líkamlega fæðu, að ekki er það ávallt það gómsætasta, sem mestan líkamsþroska veitir, og sumir verða sólgnir í eiturnautnir, sem hafa skaðleg áhrif á líkamann. Ekki eru ósvipuð áhrif, sem bókalestur getur haft á fólk, því glæpamanna-, morð- og draugasögur geta haft svipuð áhrif á hugsunarháttinn sem eiturnautnir á líkamann. Þær auka það illa í manninum og valda oft hræðslu (myrkfælni). En mörgum þykir þær spennandi og sækjast því eftir slíku lesefni, svipað og þeir, sem venjast á eiturnautnir. Þá er svo með sumar bækur, að þær eru gagnslausar, hafa ekki áhrif til góðs né ills. Það munu margir telja, að tilgangslaust sé að gleypa í sig mikið af fánýtri fæðu, en sumir hafa kannske nógan tíma til að lesa þessháttar bækur, og skal þá ekki lasta slíkt. Svo mun þó með marga, að þeir hafa miklum störfum að gegna, en takmarkaðar tómstundir til bókalesturs. Flestir þeirra munu vera þannig, að þeir hafa þörf fyrir að auka sinn andlega þroska, til að verða hæfari starfsmenn í þjóðfélaginu ... ... Það hefur verið mikið um öfgakenndar bókaauglýsingar að undanförnu, og ekki er óeðlilegt, að það glepji suma, þegar fánýtt og skaðlegt rusl er auglýst sem úrvalsbækur. Þörf er því á, að æskufólkið hugsi málið og athugi það, hvort heldur skal velja lesefni, sem hefir áhrif til góðs eða ills, og velji bækur í bókasöfn sín með tilliti til þess. Sumir eru máske þannig, að þeim finnst þeir geta verið nógu góðir þjóðfélagsþegnar, þó þeir spillist eitthvað, eða nái ekki eðlilegum þroska vegna eiturnautna. Fleiri munu þeir þó vera, sem finna það, að þeir þurfa á allri sinni orku og auknum þroska að halda til að vera sem starfhæfastir umbótamenn í þjóðfélaginu. Þess vegna er það nauðsyn, að æskan venji sig á að „verja tíma og kröftum rétt” og telji það eitt af hlutverkum ungmennafélaganna að eiga góð bókasöfn, sem geta veitt andleg verðmæti í fáum en dýrmætum tónstundum. Stefán Runólfsson Berustöðum Skinfaxi fyrir 40 árum Landhelgi og landgrunn Afstaða Breta Eins og öllum íslendingum er kunnugt hafa Bretar reynzt eina þjóðin, sem ekki hefur í verki viðurkennt tólf mílna landhelgi við ísland. Þeir segja, að notkun þeirra á fiskimiðum íslendinga upp að þriggja mílna mörkum sé orðin hefð, sem jafngildi alþjóðalögum. En hefð Breta hér við ísland hefur verið sú, að skrapa miðin upp í landsteina, stemma stigu fyrir fiskigöngum, eyða fiski, sem gengur á grunnmið, eyðileggja botngróður, spilla veiðarfærum íslendinga, gera ólíft á fjölda bæja, sem verið hafa í byggð um aldir, og eyða þeim og heil hverfiheilum hverfum og jafnvel sveitum. Það er þessi hefð, sem þeir eru svo blygðunarlausir að telja hafa veitt þeim rétt til að veiða hér - til að halda áfram eyðingunni! Bretar eru lýðræðisþjóð, en enn eru þeir í fjötrum fornrar villimennsku í samskiptum sínum við aðrar þjóðir. Og svo minnkar gengi þeirra og virðing með hverju árinu, sem líður. Er skemmst að minnast þeirrar svívirðu og þess tjóns sem þeir hafa haft af Kýpurmálunum og af andstöðu sinni við þjóðernishreyfingar þeldökkra manna í Austur-Afríku. Og auðvitað endar með skömm og skaða yfirgangur þeirra gagnvart íslendingum, þó að sízt sé fyrir að synja, að þeir þrjózkist enn um skeið, sem jafnvel nemi árum. Jafnve/ ungt fð/k eykur velllðan sínn með þvi a'ð nola Hiárvötn og Ilmvöln. Vér frumleiðuin: Eau de Portujfal. Euu de Quinine. Euu de Cologne. Bayrhum. Isvutn. JÞá Iiöfuin vér hafið framleiðslu á ilmvötnum úr hinum beztu erlendu efnum. Fyisla merkið, Fnntasie, er þegnr komið n markaðinn og kostar i Jiúðum frá kr. 1.50 lil lcr. 0.00 Auk l>ess liöfum vér einkainnflutning á er- leudum ilmvölnum og hái-völnum og snúa verzlanir sér þvi til vor, liegar þœr þurfa ú þcssum vörum uð halda. Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bök- unardropa þó, sem vér seljum. Þcir eru búnir til með réttum luetti, úr réttum efnum, Fást alsaðar. Afengisverslu/i ríkisins.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.