Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 6
Guðjón Valur Sigurðsson, handknatt-
leiksmaður í Þýskalandi, hefur heldur
betur látið að sér kveða í vetur með
liði sínu. GuðjónValur hefur átt hvern
stórleikinn af fætur öðrum, er sem
stendur langmarkahæstur og lið hans,
Gummersbach, trónir í efsta sætinu.
Guðjón Valur hefur hin síðustu ár
verið aðalburðarásinn í íslenska lands-
liðinu og engum hafa dulist hæfileikar
hans á handboltasviðinu. I vetur hefur
hins vegar styrkur hans komið enn
betur í Ijós og hann lætur verkin tala í
orðsins fyllstu merkingu. GuðjónValur
er ekki að gera mikið úr afrekum sínum
heldur er hann hógværðin uppmáluð.
Guðjón Valur hafði undanfarin ár leikið með Essen en
ákvað síðan að söðla um og gekk í raðir Gummersbach og
gerði við félagið tveggja ára samning. Hann er ekki eini
Islendingurinn í röðum Gummersbach því að Róbert
Gunnarsson hóf leik með liðinu í haust en þangað kom
hann frá Danmörku þar sem hann hafði leikið við góðan
orðstír; Róbert er línumaður og hefur vakið mikla athygli
fyrir framgöngu sína. Islenskir handknattleiksmenn gera það
ekki endasleppt í Þýskalandi frekar en fyrri daginn en margir
af okkar fremstu handboltamönnum hafa í gegnum tíðina
gert garðinn frægan þar um slóðir
„Það er voðalega erfitt að segja um það hvort maður
standi á hátindi ferils síns. Það er þó ekki hægt að líta fram
hjá því að það gengur vel þessa dagana og ég er að leika
með mjög góðu liði. Eg veit ekki hvort ég er í betra formi
en áður, en ég vann aftur á móti vel í mínum málum áður en
tímabilið hófst í haust. Ég byggði líkamann vel upp í sumar-
frfinu hér heima og það er alveg víst að sú vinna hefur skilað
sér. Það hefur Ii1<a hjálpað mér að ég hef sloppið við meiðsli
og það skiptir öllu að Ii1<aminn sé í lagi. Ég er mjög hress og
i
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands