Skinfaxi - 01.11.2005, Page 7
mér líður vel að spila með mínu nýja liði," sagði Guðjón
Valur Sigurðsson í spjalli við Skinfaxa hér heima á dögunum
þegar hann var að leika með landsliðinu í leikjunum sem
háðir voru við Norðmenn.
- I hverju liggur munurinn á því að leika með Essen og
leika með Gummersbach í dag?
,,Þessi tvö lið leika ólíkan handbolta og hópurinn hjá
Gummersbach er breiðari og í því liggur munurinn aðallega."
Aðspurður hvort árangurinn hefði komið leikmönnum og
forsvarsmönnum liðsins á óvart sagði Guðjón Valur svo ekki
vera.
„Við höfum fram að þessu verið að mæta liðum sem
talin eru veikari en við en núna í desember reynir virkilega á
styrk okkar Þá mætum við liðum sem hafa verið í hópi
þeirra bestu undanfarin ár. Ahuginn er mikill í Gummersbach
og við fáum mikinn stuðning frá fólkinu þar. Það hafa verið
skiptar skoðanir á því hvort við eigum að leika heimaleiki
okkar í heimabænum eða í Köln. Það er óneitanlega mjög
spennandi að leika í Köln, í höll sem tekur 19 þúsund áhorf-
endur; en þar er að vakna áhugi samfara þessum leikjum
sem við höfum verið að leika þan Ég er bjartsýnn á fram-
haldið og vonandi verðum við áfram á þeirri braut sem liðið
er búið að vera á í haust.Við höfum enga ástæðu til annars
en að vera bjartsýnir en við eigum mjög erfiða leiki fýrir
höndum í desember"
- Ef við snúum okkur að íslenska landsliðinu og þátttöku
þess á Evrópumótinu í Sviss, hvað viltu segja um það?
Mótið leggst vel í mig en við erum að koma upp með
skemmtilegt lið.Við höfum náð að leika okkur ágætlega
saman og árangur liðsins á mótinu í Póllandi og eins gegn
Norðmönnum gefur ekki ástæðu til annars en að vera
bjartsýnn. Mótið í Póllandi var sterkt og því var gott að að
vinna sigur á því upp á framhaldið.Við erum hvergi smeykir
og óttumst ekki andstæðinga okkar á Evrópumótinu í Sviss.
Við erum með reynslumeira lið en á sfðasta stórmóti og við
höfum þurft þennan tíma til að slípa okkur saman. Það vilja
allir sjá árangur en liðið hefur farið í gegnum ákveðnar
breytingar sem tekur tíma að vinna úr Ég held að það sé að
takast hjá okkur en það er langur tfmi fram undan. Ef við
höldum þessu liði saman er ég alveg handviss um að við
förum langt á næstu árum.”
- Svona rétt f lokin, Guðjón Valur Átt þú heilræði til
handa börnum og unglingum sem eru að æfa fþróttir i' dag?
„Það er einfaldlega að æfa og allir þurfa líka að nota tím-
ann vel utan hins venjulega æfingatíma með þjálfurum. Allir
þurfa að vinna vel í sfnum málum og sjá hvernig þeir geta
bætt sig.Til að ná langt þarf að leggja mikla vinnu á sig og
menn uppskera samkvæmt því. Heilbrigt líferni og hollt
mataræði skiptir ennfremur miklu máli. Ungir i'þróttamenn
verða að hugsa vel um líkamann, að fá sinn svefn og lifa heil-
brigðu líferni leikur stórt hlutverk í þessu sambandi," sagði
Guðjón Valur Sigurðsson.