Skinfaxi - 01.11.2005, Side 14
r
44. sambandsþing UMFI haldiö á Egilsstöðum:
Framkvæmdastjóri
og stjórn UMFI.
Efri röð frá vinstri:
Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri, Björn Armann
Olafsson, gjaldkeri, Hringur
Hreinsson, meðstjórnandi,
Haraldur Þ.Jóhannsson, vara-
stjórn, Einar Jón Geirsson,
meðstjórnandi, Jóhann
Tryggvason, varastjórn,
Einar Haraldsson, varastjórn.
Neðri röð frá vinstri:Anna R.
Möller, meðstjórnandi, Helga
Guðjónsdóttir, varaformaður,
Björn B.Jónsson, formaður,
Asdís Helga BJarnadóttir,
ritari, Eyrún H. Hlynsdóttir,
varastjórn.
>
M cr mii flð gerflst í hreyfingunni
44. sambandsþing UMFÍ var haldið á Egilsstöðum
helgina 22.-23. október sl. og sóttu það hátt í 100 þingfull-
trúar Meðal tillagna, sem samþykktar voru á þinginu, var að
sambandsþingið feli stjórn UMFI að hrinda í framkvæmd
uppbyggingu nýrra aðalstöðva hreyflngarinnar. Stefnt verði
að því að uppbyggingunni verði lokið á 100 ára afmæli UMFI
árið 2007. Þingið samþykkir jafnframt að fela stjórn að gera
kostnaðaráætlun og frumdrög að teikningum sem lögð
verða fyrir formannafund UMFI til samþykktar
„£g er mjög ánægður með þingið sem gekk mjög vel fyrir
sig í alla staði. Það voru margar áhugaverðar tillögur samþykkt-
ar og ein af þeim stærstu er tvímælalaust að hrinda í fram-
kvæmd uppbyggingu nýrra aðalstöðva hreyfingarinnar í Reykja-
vík. Ennfremur að byggja upp útilífs- og listabúðir fyrir 8. bekk
grunnskólanna, í anda UMFI, að Skógum undir Eyjafjöllum, í
samstarfi við sveitarstjórn Rangárþings eystra og menntamála-
ráðuneytið. Það er mikið að gerast í hreyfingunni og óhætt að
segja að það sé bjart fram undan," sagði Björn B. Jónsson,
formaður UMFÍ.
Breytingar urðu á stjórn UMFI en í aðalstjórn sitja nú:
Ásdís Helga Bjarnadóttin Helga Guðjónsdóttir, Björn Ármann
Olafsson, Anna R. Möller, Hringur Hreinsson og Einar Jón
Geirsson. I varastjórn eru JóhannTryggvason, Haraldur Þór
Jóhannsson, Einar Haraldsson og Eyrún Harpa Hlynsdóttir
SKiNFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands