Skinfaxi - 01.11.2005, Qupperneq 31
Sparkvallaátak KSI
Sparhvellir vígðír vítt
og breitt um landiö
Árið 2004 var sparkvallaátaki KSÍ ýtt úr vör Um er að ræða
eitthvert umfangsmesta útbreiðsluverkefni sem KSI hefur ráðist í frá
upphafi. Kveikjan að því var ákvörðun UEFA um að veita aðildar-
samböndum sínum styrk til að byggja sparkvelli. KSI sótti um styrk
til fjárlaganefndar Alþingis og leitaði eftir stuðningi Eimskipa, Oli's,
VIS og KB-banka.
KSI setti strax stefnuna á að nýta þetta fjármagn til að byggja
sem flesta sparkvelli. Hugmynd KSI var frá upphafi sú að fá til liðs
við síg sveitarfélög í landinu, þannig að KSI legði til fyrsta flokks
gervigras á velli sem byggðir væru eftir leiðbeiningum frá KSI víðs
vegar um landið.
Þrír sparkvellir voru teknir í notkun í Rangárvallasýslu föstudag-
inn 2. desember síðastliðinn. I Rangárþingi ytra var sparkvöllur vígð-
ur á Hellu, við skóla og íþróttahús staðarins, og að Laugalandi í
Holtum, við skóla og íþróttahús sem rekið er í sameiningu af Rang-
árþingi ytra og Ásahreppi. I Rangárþingi eystra var sparkvöllur vígð-
ur við skólann á Hvolsvelli.Viðstaddir á hverjum stað voru fulltrúar
sveitarfélaga, skóla og íþróttafélaga.
Eins og við vígslur annarra sparkvalla voru skólum og íþrótta-
Vá
7r
\_iu
VV
Gleðileg jól
með islenskum
ilmandi jólatrjám,
greinum og eldiviði
i\F /J \X j !||| \ I VnN / Jr
Munid að áslensk tré eru umhverfisvæn
SKOGRÆKT
RÍKISINS ivv
'// > • , - '>y
Suðurland 480 1821 / 864 1102 ® Norðurland 462 5175
Austurland 4711774 # Vesturland 435 0047
Myndir úr myndasafni KSI.
félögum staðanna færðir knettir af bestu gerð að gjöf. I haust og
fram að jólum hafa auk fyrrgreindra valla verið teknir í riotkun vellir
á Kirkjubæjarklaustri, Egilsstöðum, Eskifirði, Djúpavogi, ÍVÍk, ÍVogum,
á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði ogVestmannaeyjum.
Eyjólfur Sverrisson, verkefnisstjóri sparkvalla KSI, segir þetta eitt
stærsta átak sem Knattspyrnusambandið hefur ráðist í. Markmiðið
er að reisa 63 velli vítt og breitt um landið og í dag er langt komið
að ná því markmiði. Að sögn Eyjólfs eru síðan áform uppi um að
halda átakinu áfram og byggja enn fleiri velli á næstu árum.
„Þetta átak er svo sannarlega að skila sínu og á eftir að gera það
enn frekar þegar fram í sækir. Þegar ég var gutti var fullt af opnum
svæðum til staðar en í dag eru þau varla til. Við erum að búa til þenn-
an vettvang svo að krakkarnir geti leikið sér í vinsælustu íþróttagrein i'
heiminum sem knattspyrnan er. Með uppbyggingu þessara valla vorum
við ekki síður að huga að hreyfingu barna og unglinga almennt sem
ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum. Við fáum alls staðar
að mjög jákvæð viðbrögð vegna þessa átaks og segja má að þarna
eigi sér stað algjör bylting," sagði Eyjólfur Sverrisson.
SKINFAXI - gefið út samfleytt síðan 1909