Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 3
FORMAÐUR UMFÍ:
HELGA GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR
GAMAN SAMAN
Unglingalandsmótin eru fjölskylduhátíð
Sumarið er komið með sól í sinni. Nátt-
úran verður litskrúðugri með hverjum
deginum og tilveran svo yndislega
skemmtileg. Starfið hjá ungmenna- og
íþróttafélögunum blómstrar og mikið er
um að vera úti um allt land.
Hjá ungmennafélagshreyfingunni
verður heilmikið um að vera í allt sumar.
„Fjölskyldan á fjallið" er skemmtilegt
verkefni sem fjölskyldan getur samein-
ast um að taka þátt í. Víða hafa héraðs-
sambönd valið fjöll heima í héraði sem
áhugavert er að ganga á. Á heimasíðu
UMFÍ og í bókinni Göngum um ísland,
sem UMFI gefur út, má finna nöfnin á
þeim fjöllum sem tilnefnd eru í sumar.
Bókina er hægt að nálgast á bensínstöðv-
um Olís. Vefurinn ganga.is hefur verið
yfirfarinn og er orðinn mjög aðgengi-
legur og upplýsandi fyrir áhugafólk um
göngur.
Þann 19. júní voru fyrstu skrefin í verk-
efninu „Gæfuspor“ tekin. Verkefnið hef-
ur það markmið að hvetja fólk, sem er
sextíu ára og eldra, til að fara út og ganga
sér til ánægju og heilsubótar. Sparisjóð-
irnir eru aðalsamstarfsaðilar UMFÍ við
verkefnið ásamt heilbrigðisráðuneytinu
og Lýðheilsustöð. Bæklingur, sem ber
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ,
í góðra vina hópi
á sambandsráðs-
fundi UMFÍ, sem
haldinn var í Þor-
lákshöfn í apríl.
sama nafn og verkefnið, er gefinn út sam-
hliða þvi. I honum er að finna ýmsar hag-
nýtar upplýsingar fyrir göngufólk og
mun hann liggja framnti m.a. í spari-
sjóðunum.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er í undirbún-
ingi í samstarfi við Frjálsíþróttasamband
Islands, FRl. Skólinn verður á þeim stöð-
um á landinu þar sem haldin hafa verið
unglingalandsmót og landsmót og búið
er að koma upp góðri aðstöðu til æfinga
og keppni í frjálsum íþróttum.
Síðast en ekki síst er það 11. Unglinga-
landsmótið sem haldið verður í Þor-
lákshöfn urn verslunarmannahelgina.
En af hverju er ungmennafélagshreyf-
ingin svona stolt af Unglingalandsmót-
unum? I mínum huga eru mótin fyrst
og síðast fjölskylduhátíð þar sem
íþróttir og unglingar eru í fyrirrúmi.
Lögð er áhersla á að stórfjölskyldan geti
komið sarnan þessa mestu ferðahelgi
landsmanna, verslunarmannahelgina, í
umhverfi sem er án vímuefna og þar sem
heilbrigt íþrótta- og tómstundastarf er í
fyrirrúmi. Hinn sanni og góði ung-
mennafélagsandi ræður ríkjum og skap-
ar það góða andrúmsloft sem einkennir
mótin.
Mótin hafa vakið verðskuldaða athygli
og hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Þeir
fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið
öðrum til fyrirmyndar í allri framkontu,
hvort sem urn er að ræða í keppni, leik
eða umgengni. Ég fullyrði að mótin
eiga engan sinn líka á íslandi, jafnvel í
heiminum.
Af nógu er að taka í starfi ungmenna-
félaga hvar sem á það er litið. Eitt getum
við öll verið sammála um þegar sumri
lýkur. Við höfðum það gaman sarnan.
Islandi allt.
Sveinn Elías og Helga Margrét Norðurlandameistarar
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni og Helga Margrét Þorsteins-
dóttir, Ármanni, urðu Norðurlandameistarar í sínurn flokk-
um í fjölþraut í Jyváskylá í Finnlandi dagana 7.-8. júní sl.
Sveinn Elías varð Norðurlandameistari í tugþraut í flokki
18-19 ára og hlaut alls 7086 stig. Árangur Sveins Elíasar:
100 m hlaup 10,98 sek., langstökk 6,96 m, kúluvarp 13,11 m,
hástökk 1,87 m, 400 m hlaup 48,86 sek., 110 m grindahlaup
15,28 sek., kringlukast 32,61 m, stangarstökk 4,25 m, spjót-
kast 44,55 m og 1500 m hlaup 4:43,19 mín.
Helga Margrct varð Norðurlandameistari í sjöþraut í flokki
17 ára og yngri og hlaut alls 5520 stig. Þetta er besti árangur
Helgu Margrétar í sjöþraut og um leið Islandsmet í stúlkna-
flokki. Árangur Helgu Margrétar: 100 m grindahlaup 14,59
sek., hástökk 1,64 m, kúluvarp 13,03 m, 200 m hlaup 25,28
sek., langstökk 5,48 m, spjótkast 41,87 m og 800 m hlaup
2:17,87 mín. Þessi árangur Sveins Elíasar og Helgu Margrét-
ar er stórkostlegur og sýnir að rnikil vakning er í frjálsum
íþróttum hér á landi. Bætt aðstaða frjálsíþróttamanna er svo
sannarlega að skila sér og framtíðin er björt.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 3