Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2008, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.05.2008, Qupperneq 8
Frá samráðsfundi UMFÍ í Þorlákshöfn. Sigurður Guðmundsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Mosfellsbæ, sagði frá samstarfi Aftureldingar og Mosfelisbæjar. Samráðsfundur UMFÍ í Þorlákshöfn Samráðsfundur Ungmennafélags fslands fór fram í Þorlákshöfn 26.-27. apríl sl. Föstudaginn 25. apríl var stjórnarfund- ur UMFf haldinn á Selfossi. Um 40 manns voru á samráðsfundinum sem var afar gagnlegur í alla staði. Meginþema samsráðsfundarins var samstarf héraðssambanda við sveitar- stjórnir. Einnig var farið yfir starf sam- bandsaðila og UMFÍ og málefni hreyf- ingarinnar rædd. Formenn og fram- kvæmdastjórar héraðssambanda auk starfsmanna félaga tóku þátt í fundinum. Reynir Ragnarsson, formaður íþróttabandalags Reykjavíkur, fór yfir samstarf IBR við Reykjavíkurborg og Sigurður Guðmundsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Mosfellsbæ, sagði frá samstarfi Aftureldingar við sveitar- félagið þar. Þessi erindi voru mjög fræð- andi og skemmtileg og ljóst að mikið og áhugavert starf er unnið á þessum stöð- um. Einnig var sérstök kynning á Ungl- ingalandsmótinu sem haldið verður í Þorlákshöfn um verslunarmannahelg- ina, dagana 1.-3. ágúst nk. Farið var yfir alla þætti mótsins og fyrirspurnum svarað. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarsson, kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir við upp- byggingu íþróttamannvirkja vegna Unglingalandsmótsins. Einnig fór Jóhanna Fljartardóttir, starfsmaður móts- ins, yfir nokkur framkvæmdaatriði er tengiast Unglingalandsmótinu. Því næst var ekið með hópinn um Þorlákshöfn og fundarmönnum sýndar framkvæmd- ir sem standa yflr, undir leiðsögn Ragn- ars Sigurðssonar, formanns unglinga- landsmótsnefndar og varaformanns HSK. Augljóst er að Ölfusingar ætla að standa að þessu móti með miklum glæsibrag. Frjálsíþróttavöllurinn, sem verður fyrir sunnan íþróttahúsið, verð- ur með þeim glæsilegri hér á landi. Gríðarstór jarðvegsmön umlykur völl- inn á þrjá vegu og gefur honum glæsi- legt yfirbragð. Þá verður byggð ný sund- laug og búningsaðstaða við íþrótta- völlinn. Á sunnudeginum var farið í skoðun- arferð á Selfossi þar sem aðsetur Ung- mennafélags Selfoss og Héraðssam- bandsins Skarphéðins við Engjaveg voru heimsótt. Örn Guðnason, framkvæmda- stjóri Umf. Selfoss, kynnti starfsemi félagsins og sýndi glæsileg húsakynni. Þá kynnti Bragi Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Árborgar, fundar- mönnum áform um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Árborg. Að lokum var snæddur hádegisverður í Selinu, félagsaðstöðu HSK, þar sem Gísli Páll Pálsson, formaður sambandsins, sagði frá starfsemi þess. 8 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.