Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2008, Side 11

Skinfaxi - 01.05.2008, Side 11
Þrátt fyrir að íþróttakeppni unga fólks- ins sé aðalatriðið á Unglingalandsmóti UMFI um verslunarmannahelgina, er hugsað fyrir margvíslegri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Þeir sem mæta snemma á mótsstað geta farið á tónleika með Jazzbandi Suðurlands sem haldnir verða á fimmtudagskvöldinu. Yngri börnin fá að sjálfsögðu líka að spreyta sig við ýmsar íþróttir á vel útbúnu leik- svæði við leik- og grunnskóla Þorláks- hafnar. Siðan verða settar upp listasmiðj- ur þar sem áhugasamir - stórir jafnt sem smáir - fá að mála og spreyta sig við ljóðagerð. Úrval ljóðanna verður siðan hengt upp á völdum stöðum um bæinn. f bæklingi verður bent á áhuga- verðar gönguferðir þar sem hægt verður að fræðast urn ýmislegt tengt sögu Þor- lákshafnar á upplýsingaskiltum, enn- fremur verða skipulagðar göngur um bæinn og hafnarsvæðið og annast Ferða- málafélag Ölfuss Ieiðsögnina í þeim ferðum. Á ýmsum stöðum verða sýningar, ýmist á málverkum, blaðaúrklippum eða ljósmyndum, m.a. verður ljósmynda- sýning í Hafnarnesvita en ágætis göngu- leið er frá útsýnisstað við hafnargarð út í vita. Bæjarbókasafn Ölfuss stendur fyrir bókamarkaði auk þess að bjóða upp á sögustundir fyrir yngstu börnin. Einnig verður boðið upp á brúðuleik- sýningar með listamanninum Bernd Ogrodnik. Um tvær mismunandi sýn- ingar er að ræða og fjallar önnur þeirra um drenginn Einar Áskel sem flest börn EITTHVAÐ FYRIR ALLA 11 -UNGLINGA LAND5MÓT UMFÍ þekkja úr vinsælum bókum Gunillu Bergström. Hin sýningin heitir Um- breyting og hlaut hún afburðadóma gagnrýnenda er hún var sýnd í Þjóðleik- húsinu. Sýningin er ekkert síður ætluð fullorðnum en börnum. Unga fólkið get- ur síðan hlakkað til þess að á kvöldin verða kvöldvökur þar seni ýmsar hljóm- sveitir og tónlistarmenn, bwði reynslu- boltar og ungar hljómsveitir, koma fram. Á laugardagskvöldinu verður kvöidvak- an úti við varðeld og stýrir ein vinsæl- asta hljómsveitin á fslandi í dag kvöld- vökunni, þ.e. Ingó og veðurguðirnir. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.