Skinfaxi - 01.05.2008, Side 28
FYRSTA SKREFIÐ
TEKIÐ í GÆFUSPORI
Ungmennafélag Islands tók fyrsta skrefið
með verkefnið Gæfuspor fimmtudaginn
19. júní sl. Gæfuspor er verkefni þar sem
fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út
og ganga sér til ánægju og heilsubótar.
Verkefnið hófst á fimm stöðum á land-
inu, í Borgarnesi, Reykjanesbæ, Nes-
kaupsstað, á Selfossi og Sauðárkróki. I
kjölfarið verður framhaldið skoðað með
fleiri staði í huga.
Sparisjóðirnir eru aðalsamstarfsaðili
UMFf að verkefninu. Sparisjóðirnir munu
afhenda öllu göngufólki vandaðan jakka,
sem er merktur Gæfuspori, til eignar.
Einnig styrkja heilbrigðisráðuneytið og
Lýðheilsustöð verkefnið myndarlega.
Fimmtudaginn 19. júníkl. 10:00 vargeng-
ið af stað frá sparisjóðunum á viðkom-
andi stöðum og voru allir 60 ára og eldri
velkomnir.
Hver hópur ákveður hve oft og hvaðan
er gengið og eins getur fólk valið sér tíma
og staði þegar því hentar. Aðalatriðið er
að fara út að ganga á eigin forsendum, sér
til ánægju, í góðum hópi vina og félaga.
Sérstakur bæklingur var geflnn út sam-
hliða verkefninu með ýmsum hagnýtum
upplýsingum fýrir göngufólk og mun
hann liggja frammi í sparisjóðum og á
fleiri stöðum.
Þátttakan á fyrsta degi verkefnisins
var mjög góð en 300 manns tóku fyrstu
skrefin á framangreindum stöðum.
„Við erum mjög ánœgð með hvað verk-
efniðfór vel afstað. Þátttakan var meiri
en við áttum von á ogþað ríkti mikil og
almenn ánœgja á meðal göngufólksins. Við
viljum nota tcekifœrið ogþakka öllum
fyrir þátttökuna og við erum mjög bjart-
sýn áframhaldið en stefnt er að því að
bceta viðfleiri stöðum í haust, “ sagði Ómar
Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFI.
Gæfuspor leggur af
stað í Neskaupsstað.
28 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands