Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 31
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
Fjölmennt á
75. þingi USÚ
á Hornafirði
75. þing USÚ, sem haldið var 13. mars
sl., var fjölmennt og mættu á það full-
trúar frá öllum aðildarfélögum. Gestir
þingsins voru Helga Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, Sigríður Jónsdóttir úr
framkvæmdastjórn ISÍ og Sæmundur
Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Þingfulltrúar og gestir voru sammála
um að 2007 hefði verið USÚ farsælt
starfsár og ber þar hæst Unglingalands-
mótið sem haldið var á Höfn um versl-
unarmannahelgina og var Hornfirðing-
um öllum til sóma.
Breytingar urðu á stjórn USÚ, Jóhanna
Kristjánsdóttir hætti í stjórn og inn kom
Þórhalla Magnúsdóttir. Ragnhildur
Einarsdóttir og Kjartan Hreinsson voru
endurkjörin.
USÚ tekur í notkun
nýja heimasíðu
Ungmennasambandið Úlfljótur, USÚ,
tók í notkun nýja og fullkomna heimasíðu
13. mars sl. Síðan var opnuð með form-
legum hætti á 75. ársþingi USÚ sem
haldið var á Kaffí Horninu.
Heimasíðan á að þjóna upplýsingar-
hlutverki fyrir aðildarfélög USÚ sem
eru átta talsins. Þar munu birtast fundar-
gerðir og lög og reglugerðir sambands-
ins auk frétta af starfmu.
Er það von stjórnar USÚ að þessi við-
bót við starfið eigi eftir að einfalda upp-
lýsingaflæði í allar áttir.
Helga Guðjóns-
dóttir, formaður
UMFl, sæmir
Ragnhildi Einars-
dóttur, formann
USÚ, starfsmerki
UMFl.
wcvw.gaM/jti.k
^NGMennásambandv
tlLFLJÓTm
Sjötti sigur Stefáns Geirs-
sonar í Skjaldarglímu HSK
Héraðsmót Skarphéðins í glímu fór
fram í Reykholti í Biskupstungum 12.
apríl sl. Keppendur voru 58 talsins frá
sjö félögum og keppt var í níu aldurs-
flokkum. Hápunktur keppninnar
voru skjaldarglímur karla og kvenna.
Keppt var um hinn fræga Skarp-
héðinsskjöld í 84. sinn og voru glímu-
kapparnir sex talsins. Stefán Geirsson,
Samhygð, og Ólafur Sigurðsson, Ung-
mennafélagi Laugdæla, glímdu til
úrslita og sigraði Stefán eftir spenn-
andi viðeign. Þetta var sjötti sigur
Stefáns í Skjaldarglímunni. Elisabeth
Patriarca frá Iþróttafélaginu Dímon
sigraði í keppni fjögurra kvenna um
Bergþóruskjöldinn. Hún sigraði nú
íjórða árið í röð.
I stigakeppni félaga var Iþróttafélag-
ið Dímon í Rangárþingi eystra sigur-
sælast og sigraði í drengja-, stúlkna-
og lcvennaflokki. Ungmennafélag
Laugdæla sigraði í karlaflokki.
Skarphéðinsmenn halda merld
glímunnar hátt á lofti og bera fram
arfleifð Sigurðar Greipssonar í Hauka-
dal sem á síðustu öld kenndi hátt í
þúsund glímumönnum töldn á þjóðar-
íþróttinni.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 31