Skinfaxi - 01.11.2008, Blaðsíða 27
Ónógur svefn unglinga hefur neikvæð áhrif
á námsgetu og heilsuna
Svefnþörf er að einhverju leyti
einstaklingsbundin og breytist í gegn-
um lífið. Yngstu skólabörnin þurfa í
kringum 9 tíma á nóttu, en þegar kom-
ið er á unglingsárin eykst svefnþörfin
um u.þ.b. klukkustund á nóttu vegna
þess aukna álags sem fylgir gelgju-
skeiðinu. Reyndin er þó sú að stór hluti
unglinga styttir svefntíma sinn í stað
þess að lengja hann. Við lifum á eril-
sömum tímum og það er margt sem
getur haft neikvæð áhrif á svefninn.
Fyrir utan að sinna heimalærdómi og
áhugamálum tekur sjónvarpið og
internetið sífellt meiri tíma barna og
unglinga.
• Unglingarþurfau.þ.b. 10 klst. svefn
yfirnóttina.
• Lengd og gæði nætursvefns hefur
áhrifá námsgetu og minni.
• ísvefni fer fram upprifjun og
úrvinnsla úrþeim uppiýsingum sem
við höfum fengiðyfirdaginn.
• Að sofa á daginn kemurþví ekki í
staðinn fyrir tapaðan nætursvefn.
Rannsóknir hafa sýnt að gæði og
lengd nætursvefns hafa áhrif á náms-
getu og minni. í svefni ferfram upp-
rifjun og úrvinnsla úr þeim upplýsing-
um sem við höfum fengið yfir daginn
og þær upplýsingar festast í minninu.
Einnig er svefninn nauðsynlegur fyrir
ónæmiskerfið til að auka mótstöðu
gegn veikindum og hann er einnig
nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska
unglingsins. Á unglingsárunum eiga
sér stað miklar hormónabreytingar í
líkamanum. Mikill hluti þeirra hormóna
framleiðist á nóttunni og er sú fram-
leiðsla háð góðum nætursvefni. Að sofa
á daginn kemur því ekki í staðinn fyrir
tapaðan nætursvefn.
Þeir unglingar sem hafa góðar svefn-
venjurog sofa nóg eru hamingjusam-
ari, taka frekar ábyrgð á heilsunni, borða
hollari mat, eru hæfari til að takast á
við streitu og ástunda frekar reglulega
hreyfingu en þeir unglingar sem sofa
ekki nóg.
Hér eru nokkur einföld ráð fyrir for-
eldra sem komið geta að notum til að
hjálpa unglingum við að ná betri
nætursvefni.
1. Úreglulegar svefnvenjur geta vaidið
ójafnvægi í iíkamanum. Hvetjið ungl-
inginn til að fara að sofa og vakna á
svipuðum tíma á hverjum degi. Ef
unglingurinn fær nægjanlegan svefn á
virkum dögum þarfhann ekki að sofa
lengur um helgar.
2. Efunglingurinn eroft þreyttur á dag-
inngetur hjálpað að fá sér smákríu til
að hlaða batteríin. Varast skal að sofa
lengur en klukkustund því þá getur
lúrinn haft öfug áhrifog valdið því að
erfiðara verðurað sofna um kvöldið.
3. Áhyggjur og streita geta valdið því að
Sveinbjörn
Kristjánsson
verkefnisstjóri,
Lýðheilsustöð
erfitterað slappa afog sofa vel. Verið
igóðu sambandi og næm fyrir hvernig
unglingnum líður. Það er ekki alltaf
auðvelt að fá ungling að tala um líðan
sína. Stundum getur hjálpað að skrifa
hugsanir og tilfinningar í dagbók.
4. Óæskilegterað unglingarsitji fyrir
framan sjónvarpið eða tölvuna seintá
kvöldin. Bæði sjónvarp og tölvuleikir
örva heilann og trufla þannig svefn.
Það getur hjálpað að bjóða unglingn-
um að taka upp sjónvarpsefni sem
hann vill alls ekki missa af.
5. Dagleg hreyfing ergóð bæði fyrir
svefninn og heilsuna. Hvettu ungling-
inn til að stunda íþróttir eða daglega
hreyfingu í frítímanum.
6. Ekki er gott að borða eða drekka mikið
fyrir svefninn. Kenndu barninu frekar
að slappa afmeðþví að fá sér smá-
vegis heitt að drekka. Heitt bað eða
sturta getureinnig verið róandi fyrir
svefninn.
7. Hjálpaðu unglingnum að stilla hita-
stigið í svefnherberginu hæfilega svalt.
Gott er að sofa við opinn glugga og
vera með dökk gluggatjöld fyrirglugg-
anum.
8. Margirbyrja á unglingsárunum að
vera lengur úti á kvöldin. Fylgið úti-
vistarreglum alla daga vikunnar. Gott
ereinnig að unglingurinn hafi tíma til
að komast í ró áður en hann fer í
rúmið.
9. Og að lokum - munið að gott fordæmi
eykur áhrif góðra ráða.
Fjóla Einarsdóttir, verkefnisstjóri Hjálparsímans:
Hingað hringja einstaklingar
af öllum stigum þjóðfélagsins
„Símanúmerið 1717 er gjald-
frjálst númer, hægt að hringja úr
lokuðum símum, opinn allan
sólarhringinn og sést ekki á síma-
reikningi að hringt hafi verið í
þetta númer. Einnig er nafnleynd
og 100% trúnaður. Við veitum
andlegan stuðning og sálræna
áfallahjálp,“ sagði Fjóla Einars-
dóttir, verkefnisstjóri Hjálparsíma
Rauða kross íslands.
Fjóla segir að þessa dagana ber-
ist að meðaltali um 73 símtöl, en
um 40% aukning var á milli mán-
aða í október og nóvember eða eftir
að kreppan skall á. Hjálparsíminn er
opinn öllum og símtöl berast frá ein-
staklingum af öllum stigum þjóð-
félagsins.
„Við bendum ennfremur á sam-
félagsleg úrræði og þjónustu. Á
hamfaratímum erum við upplýs-
ingasími fyrir almenning. Eins og
staðan er í dag sjáum við ekkert
annað en að símtölum eigi eftir að
íjölga. Við erum búin að efla enn
frekar sjálfboðaliðana sem svara en
í dag eru þeir um 100 talsins. Áður
1717
en sjálfboðaliðarnir hefja störf
hjá okkur fara þeir í gegnum 40
stunda þjálfun og námskeið og
eru eftir það í stakk búnir að taka
á móti viðkvæmum upplýsingum
og benda fólki á úrræði,“ sagði
Fjóla Einarsdóttir.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 27