Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 44
lútandi. Er þar skýrt fram tekið í kafla IV. 22. gr. „Ef skip þiggur hjálp af öðru, vegna bilun- ar á vél eða af öðrum ástæðum, greiðir vá- tryggjandi kostnað af því í hlutfalli við vátrygg- ingarupphæðina, að frádregnum 25%. öll skip, sem tryggð eru samkvæmt lögum þessum, eða af Samábyrgðinni, svo og öll skip, sem Skipa- útgerð ríkisins eða ríkissjóður gerir út eða sér um útgerð á, eru skyld til að hjálpa hvert öðru úr háska. Greiðslu fyrir slíka hjálp verður ekki krafizt eftir venjulegum björgunarreglum, held- ur skal hún ákveðin af stjórn hlutaðeigandi fé- lags, ef bæði skipin eru tryggð hjá sama félagi, eða af stjórn Samábyrgðarinnar. Greiða skal aðeins það fjártjón og þann tilkostnað, sem hjálpin hefur bakað þeim, er hana veitti. Sbr. einnig 13. gr. 3. málsgreinar, og aldrei getur greiðslan orðið hærri en vátrygginagrupphæð skipsins, sem hjálpina þáði. Ákvæði laga nr. 32, 9. jan. 1935 um hlutdeild skipshafnar í björgun- arlaunum breytist í samræmi við ákvæði greinar þessarar. Er mér var tilkynnnt að mér bæri að veita ábyrgð fyrir kr. 100.000.00 að mínum hluta, (en það er ca. y3 björgunarlauna) brást eg við og bað Sparisjóð Norðfjarðar að ábyrgjast kr. 70.000.00, sem minn hluta af hugsanlegum björgunarlaunum, en það urðu endalokin að sú upphæð skyldi tekin gild, en horfið frá kröf- unni kr. 100.000.00. Varð mér nú að hugsa til þess hvað Sæfinnur skyldi hljóta fyrir björgun á Kristjáni frá Akureyri og fór að grennslast um það og er mér sagt að stjórn Samábyrgðar- innar hafi ákveðið, að það skyldi vera kr. 3000.00, þar í reiknuð laun skipshafnar Sæfinns. Mun þetta nærri sanni að svo sé til ætlazt af henni. En ekki hef eg gert mér ljóst hve mikið ætti að greiða skipshöfninni. Eg hafnaði nú þessu boði, og hlýt að vera ábyrgur fyrir því þjórfé, sem átti að lenda í hlut skipshafnar Sæ- finns, ef þess verður krafizt, en mér er ókunn- ugt um, að íslenzkir sjómenn gangist upp við þjórfé eða mútur almennt. Ennþá stendur á- byrgð Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir mínum hluta hugsanlegra björgunarlauna til Skipaút- gerðar ríkisins og leyfi eg mér að geta þess, að verði útgerð Sæfinns gert að greiða áðurnefnda upphæð, er halli á rekstri hans 1943 ca. 65.000.00 kr. þrátt fyrir það þó hann sigldi 10 ferðir með ísfisk á Englandsmarkað, en opinber gjöld er greiðast áttu 1943 vegna tekna árið 1942 nema kr. 94.000.00, en það ár voru skattskyldar tekj- ur útgerðarinnar ca. kr. 127.000.00, þó með nokkurri breytingu ríkisskattanefndar, þannig, að nú er upplýst, að skattskyldar tekjur ákveð- ist kr. 123.563.00 og lækka opinber gjöld í hlut- falii þar af. Skip þau, sem eg hef nefnt í grein minni hér, skulu öll heyra undir sömu lagaákvæði, en hvers vegna þarf þá að koma í ljós svona málsmeð- ferð innan einnar og sömu stofnunar. Hvers- vegna sannast að kostnaður við skil tjónbáta eða björgunarlauna þarf að kosta hlutaðeig- endur innan sömu félagsbanda í mörgum tilfell- um stórfé, ef þá skilin nokkurn tíma fást. Hvers vegna er krafizt ábyrgðar af einum aðila inn- an viðskipta Samábyrgðarinnar, til tryggingar öðrum aðila, innan sömu viðskiptareglna, en al- mennt ekki. Hversvegna eru ekki allir jafnir fyrir lögunum, lögum, sem til þeirra ná þó. Eg er þess fullviss, að þeir sem að Samáb. Isl. fiskiskipa stóðu í upphafi, hafa verið góðir og nýtir menn og svo er enn, um þá sem nú eru starfsmenn hennar. Þeir vilja vinna hugsjón- inni, sem ligur til grundvallar tryggingu og ör- yggi á sjó, allt það gagn, sem þeir megna. Annað er það, hvort ákvæði Samábyrgðar- innar ekki stangast svo á við aldagamlar venj- ur, t. d. hvað snertir greiðslur fyrir aðstoð og björgun að erfitt sé að fylgja því formi, sem vart verður haldið, jafnvel þegar í hlut eiga skip sem tryggð eru innan hennar eða skip, sem Skipaútgerð ríkisins gerir út, og þó heyra undir ákvæði Samábyrgðarinnar, hvað þá heldur al- gerlega óviðkomandi skip og það máske annara þjóða. Hér virðist því ástæða til að breyta til og samræma ákvörðun um greiðslur við aðstoð og björgun við alþjóðavenjur, þar sem máttur Samábyrgðarinnar er takmarkaður, til að fara nýjar brautir á því sviði og það hefur berlega komið í ljós í ýmsum tilfellum að ósamræmi er mikið. T. d. bjargar ,,Sæfinnur“ ,,Kristjáni“ og skal fyrir það hljóta kr. 3000.00. I hinu tilfell- inu þiggur Sæfinnur aðstoð Ægis, sem með sér- stökum ákvæðum dvelur við Vestmannaeyjar til aðstoðar fiskiflotanum. Máske þó einkum heimabátum, en Sæfinnur er nú búinn að vera óslitið við Eyjarnar 3—4 vertíðir og í nánu sam- bandi við fiskveiðar þar, þar sem hann flytur út ísaðan fisk, en nauðsynjar aftur til baka, kol og salt o. fl. I seinna tilfellinu er Sæfinnur og Samábyrgðin krafin um upphæð, sem skiptir hundruðum þúsunda, ella skuli skipið kyrrsett. Hér var látið kné fylgja kviði, og það gerði aðili, sem með landslögum er háður sömu ákvæðum og öll þau skip, sem hér hafa verið nefnd og tryggð eru í Samábyrgðinni. „Skylt er skeggið hökunni“, og bæði Samábyrgðin og Skipaútgerð rikisins eru greinar á einum stofni. Það eitt að veita banka ábyrgð þá, sem krafizt var, kostaði eflaust helming þeirrar upphæðar er greiða skyldi fyrir alla björgun Kristjáns frá Akur- eyri, en þessari aðferð mun ekki almennt beitt innan Samábyrgðarinnar. En eðlilegt tel eg að 196 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.