Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 2
Koi-t yfir Eimarsund, þar sem sýndar eru 3 sendi- stöðvar í SA-hluta Englands og boglínur, sem út frá þeim ganga. Að neðan sjást viðtækin, sem sýna stað Parísarborgar, í'auð boglína nr. 156, 45 og græn bog- líná nr. 673, 66. Hér er gert ráð fyrir, að viðtækin séu í flugvél, sem flýgur yfir borgina, og auðvitað breytist staða mælanna, jafnóðum og flugvélin færist úr stað. ákvörðunum með boglínum af vissri gerð, svo- nefndum Hyperbólum, og þar eð „Decca“ mun verða það kerfið, sem mesta þýðingu fær fyrir siglingar við Evrópu, verður reynt að gera nokkra grein fyrir því hér. Sérstök sjókort verður að nota við „Decca“. ,,Decca“-aðferðin er einskonar framvinda radíómiðunartækninnar, sem lengi hefir verið notuð. Notkun „Decca“-aðferðarinnar er því skilyrði bundin, að skipið eða flugvélin hafi sér- stök kort, þar sem svæðinu, sem sigla á yfir, er skipt niður eftir alveg nýrri aðferð. Eins og kunnugt er, eru í venjulegum sjókortum dregn- ir lengdar- og breiddarbaugar, sem skerast und- ir réttum hornum, og er staður skipsins í kort- inu fundinn með tilliti til þeirra. 1 „Decca“-kerf- inu er dregið í kortið net aftölusettumboglínum (hyperbólum), sem skerast undir hvass- og sljó- hornum. (Hyperbólur eru, sem kunnugt er, bog- línur, sem myndast af öllum þeim punktum, sem hafa sama fjarlægðarmismun frá tveim til- teknum punktum). Tilteknu punktarnir eru í „Decca“-kerfinu tvær radíó-sendistöðvar, en þar eð til staðar- ákvarðana þarf tvær samstæður af slíkum bog- línum, sem skera hvor aðra, þurfa sendistöðv- ai'nar að vera a. m. k. þrjár. Þessu er komið 66 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.