Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 42
Ragnar V. Sturluson:
Afstaða íslendinga til
GRÆNLANDS
Eftirfarandi grein hefur Víkingnum borizt frá
Ragnari V. Sturlusyni á Hreggsstöðum á Barða-
strönd, ásamt eindregnum tilmælum um að hún
verði birt í blaðinu. Sér Víkingurinn ekki ástæðu
til að skorast undan þeirri ósk. Lítur hann svo
á, að nú á næstunni hljóti að fara fram um-
rxður um Grænland og opnun þess, þar sem
málið verður atlvugað frá ýmsum hliðum. Þetta
er efni, sem íslenzk sjómannastétt hlýtur að láta
til sín taka.
I.
Ummæli nokkur eða öllu heldur skoðauir, sem fiam
hafa komiö í blöðum, þar á meðal sjómannablaðinu
Víkingur, um afstöðu okkar Islendinga til Grrenlands í
sambandi við uppgjör vort við Dani, að því leyti, sem
hin myrka þögn þar um liefur veriö rofin, liafa komið
mér til að reyna boðna gestrisni blaösins í fyrirvara
þess um grein dr. Jóns Dúasonar í 10 tölublaði þess
1945, og beiðast rinns fyrir mínar leikmannlegu skoð-
anir, um þessi örlögvarðandi málefni íslands, sem ég
vil reyna að láta í ljós í eftirfarandi greinarkorni.
Hvað veldur því, að þeir fslendingar, sem rætt hafa
um rétt okkar til Grænlands, hafa margir hverjir gert
það með hálfum huga og í óljósum orðum?
Hvað varnar Islendingi að kveöa þarna greinilegar
að orði?
Er hin háskalega minnimáttarkennd okkar gagnvart
Dönum ennþá svo ríkjandi í hugum leiðandi manna okk-
ar, að þeir ]>ori ekki að tala öðru máli en rósamáli um
þessi efni, af óttrf við að styggja einhverja Dani? Eða,
sem eg vil síður gera ráð fyrir, hefur hin blekkingarfulla
barnalærdómsþekking vor á seinni áratugum, um sögu
Grœnlands, mótað svo liugi vora, að vafinn um réttindi
vor til Grænlands, leggi jafnvel leiðandi mönnum vor-
um, sein mikla menntun Iiafa þó fram yfir fjöldann,
liaft á tungu, að tala svo um þessi mál, sem dulin li.ióð-
ræknisþrá þeirra og löngun mundi bjóða þeim?
En því brvnni nauðsyn ber nú til að svifta hulu
þessa þekkingarleysis frá sjónum þjóðarinnar, sem nú
ligg.ja fyrir hinar skýrustu sögulegar rannsóknir um
þessi mál í ritverkum dr. Jóns Dúasonar, og allir þeir
Islendingar eiga aðgang að, sem þá þjóðrækni vilja
sýna að gefa gaum að þeim, og með því öðlast ])á
þekkingu, sem mjög hefur falin legið um þessa hluti
vegna sögufalsana danskra sýndar-spekinga, og mjög
hefur gert ýmsum auðtrúa mönnum vorrar þjóðar glýju
í augu hin síðari ár.
f ritverkum dr. J. D. eru dregnar fram ótal lieim-
ildir fyrir því hvernig íslendingar fundu Grænland og
Norður-Ameríku-eyjar og unnu landsréttindi vfir
])essum svæðum án þess að ræna þeim frá nokkurri
þjóð; og það er vegna afleiðingar þeirrar þjóðskipu-
lagsbreytingar, er þeir tóku erlendan konung yfir lög
þau, er batt þjóðfélag þeirra saman, jafnt á Grænlandi
og Yestureyjunum sem íslandi, að þjóðfélagsþróun
þeirra þar vestra varð með þeim hætti, að þeir gleymdu
]),jóðmenningu sinni að mestu og tungumáli og blönduðu
sér við liinn fámenna hóp Skrælingja, sem nú eru
livergi til, og tóku upp mál þeirra og siði og urðu að
því fólki, sem nútíminn nefnir Eskimóa, en eru beinir
ættmenn vorir samt sem áður, tengdir okkur sterkari
blóðböndum en nokkur annar kynþáttur á jörðunni,
þótt mál og sumir siðir hafi skilið í milli um nokkra
mannsaldra og vilt oss sýn, svo að ýmsum Danaveldis-
sinnum hefur um sinn tekizt að blinda augu vor með
moldviðri staðleysublekkinga og rangfærzlna um afdrif
landa vorra á þessum slóðum.
Enda er skiljanlega liægt um vik, er atliuguð er hin
megna óbeit og fyrilitning, sem áar vorir hafa eftirlátið
oss á þeim vesallegu frummönnum, sem þeir kölluðu
Skrælingja og fyrir voru á Jiessum ísliafssvæðum, en
])eir konungsþjónar er Grænland sigldu uppi á 18. öld,
og ekki kunnu íslenzku, töldu þar eina -vera og útrvmt
hafa löndum vorum, (og hefði þá raunar lítið lagzt
fyrir kappana) vegna þess að mál og atvinna var öll
önnur en þeir þekktu af bókum eða bjuggust við.
Er smám saman liefur verið hægt að læða því imi í
vitund vora, að Eskimóar væru snina fólk og Skvæl-
ingjar, þarf lítt að furða sig á að við vildum ekki við
þá kannast og stæðumst vart reiðari, en ef vér vorum
heiðraðir nafni þeirra.
En svo mjög sem allar sögurannsóknir Dana í Græn-
landi (Islendingar hafa ekki fengið þar nærri að koma)
hafa lagt fram gögn, sem vitna gegn þessum kenningum
(fyrir þá er kunna rétt úr að lesa) hefir þó þá dansk-
1D6
V I K I N G U R